Goðasteinn - 01.09.1971, Page 49

Goðasteinn - 01.09.1971, Page 49
hcllu í nágrenni bæjar síns, sem honum líkar. Hann gefst þó ekki upp og fer langt inn í sveitina, þar sem hann finnur sæmilegar hell- ur, en langt og erfitt var að flytja þær, og auðsætt að í það myndu fara margir dagar. Fannst Þorláki það að vonum slæmt og hafði nokkrar áhyggjur af, því mörg fleiri verk biðu óunnin. Eina nótt dreymir Þorlák, að stór og fönguleg kona stendur við rúm hans. Hún ávarpar hann og segir: „Þig vantar hellu á þakið þitt, óþarft er fyrir þig að lcggja á þig það erfiði að fara svo langt sem þú gerir, og skal ég vísa þér á hellur hér nálægt og kom þú mcð mér.“ Hún vísar honum á stað, sem hann þekkti vel, en þar höfðu aldrei sést hellur nothæfar á þök. Hún segir við hann: „Hér skaltu róta nokkuð niður í sandinn og muntu þá finna nóga og góða hellu. Hér var bærinn minn, en hann tók af í gosi úr Öræfa- jökli, ég heiti Æsgerður og var húsfreyjan á þessum bæ, og til marks um, að ég hef verið hér og segi þér satt, muntu finna hell- una, er þú Ieitar.“ Þorlákur fer dag eftir og rótar þar til, er konan vísaði honum, og kemur þá niður á stórt Iag af hellum, sem voru rnikið betri og hentugri en þær, sem hann þurfti að sækja langar leiðir, og voru nú vandræði hans leyst á þann hátt, sem hér segir frá. Nokkru seinna eignaðist Þorlákur dóttur, sem hann lét heita Æsgerði. Hann eignaðist mörg börn, en lét sér mest annt um Æsu sína. Æsgerður fluttist norður í land og eignaðist þar afkomendur. Þorlákur Jónsson var sonur Jóns Höskuldssonar Landeyings og bróðir Eymundar Jónssonar í Dilksnesi. Þorlákur sonur Þorláks Jónssonar smíðaði ljósahjálminn í Hofs- kirkju í Öræfum. ,,Hellutak“ Þorláks var þar, sem Gísli Gestsson gróf upp Graf- arbæ á Hofi. DROTTINN HEFUR LÁTIÐ FERÐ MÍNA HEPPNAST Ég ætla að segja hér sögu, sem ég veit ekki til, að hafi verið skráð. Hún gerðist löngu áður en ég fæddist, og heyrði ég hana sagða, þegar ég var lítil telpa. Síðan hef ég fengið nákvæmari lýs- ingu á atburðunum, sem ég mun nú greina frá. Goðasteinn 47

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.