Goðasteinn - 01.09.1971, Page 56

Goðasteinn - 01.09.1971, Page 56
menn þá úr austursveitum sýslunnar úr því kominn var miður þorri út í Mýrdal, réðu sig í skipsrúm og vistuðu sig á bæjum um sveitina og lágu við allt til vors. Voru þessir menn jafnan nefndir vertíðarmenn. I blaðinu Þjóðólfi sést, að hagur fólks í Leiðvallarhreppi er orðinn svo bágur 1870, að hafin eru samskot á korni í Reykjavík handa Meðallendingum, er verst eru staddir. Er birt þakklæti til gjafakornsnefndar í Reykjavík fyrir 118 tunnur af korni „hvað sanngjarnlega hún hefur við útbýtingu litið á eymdarhag Leiðvall- arhrepps." Er þetta undirritað af 3 hreppstjórum 10. febr. 1871, og í sama blaði þakkir frá séra Gísla Thorarensen á Felli f.h. Dyr- hólahreppsbúa til Jóns umboðsmanns í Suður-Vík fyrir gjöf á hval- reka í Meðallandi, sem var sjötti partur, en gjöfin gekk til fátækra í umboði Leiðvallar- og Dyrhólahrepps, nálægt 20 hestburðir, er skiptist jafnt milli hreppa. Gefur þetta hvortveggja ótvíræða lýs- ingu á ástandi þessara sveitarfélaga úm þessar mundir. Frá því sögur herma, að stundaður hafi verið sjór frá söndlum Skaftafellssýslu, hefur verið útræði við Dyrhólaey, og mun það að öllum líkindum hafa verið fyrsta útræðið í Mýrdal. Ekki hefur það þó alltaf verið á sama stað við Dyrhólaey. Vitað er, að til forna héldu menn skipum sínum út frá Kirkjufjöru sem er suður af eystri hluta Dyrhólaeyjar og er oftast í daglegu tali kallað Lág- ey og liggur vestan að fjörum Reynishverfinga. Eru þar bæði tákn og örnefni, er styðja þetta enn frekar svo sem heitið Garðar, en þar sér giöggt móta fyrir fiskigörðum, er fiskurinn hefur verið verkaður á. Þá er og Sundmagasker, þar sem magarnir voru þurrk- aðir og einnig nafnið Kvistdrangur, er trúlega dregur nafn af sjó- fangi, er kvistað hefur verið niður og hengt í dranginn til herzlu. Munnmæli segja, að er meðalkona gengi eftir Kirkjufjöru við bergið, sæist á krókfald höfuðbúnaðar hennar upp fyrir brúnina, en þar eru nú um 20 m háir hamrar og mjög stuttar fjörur frá sjó. Þessi munnmæli gefa ef til vill mesta lýsingu á þessu forna útræði, því þeir, sem bezt þekkja til, sjá strax, að þar hefur ekki getað verið útræði nema miklar breytingar hafi átt sér stað um aldirnar, og er trúlegast, að fallið hafi úr eitthvað af skerjum þar úti fyrir, er mynduðu það mikil sundurslit í landsjó og þá einnig þær fjör- 54 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.