Goðasteinn - 01.09.1971, Page 57

Goðasteinn - 01.09.1971, Page 57
ur, að hægt væri að hafa skipsuppsátur neðan klettabeltis á Kirkju- fjöru. Hvenær útræði hefur lagzt niður á þessum stað, skal engu spáð um, en vafalítið skiptir það öldum. Flytja menn þá skip sín vestur fyrir Dyrhólaey, og helzt útræði þar síðan og kallað í Dyrhólahöfn. Allir Mýrdælingar um og yfir miðjan aldur muna hvílíkt kapp var lagt á að ná í björg úr sjónum. Ef færi gafst, var farið í myrkri til sjávar að morgni, ef líkur voru fyrir að gæfi á sjó, og komið í sand í þann mund, er lagljóst var, og stundum teflt djarft, ef aflavon var úti fyrir; gjarnan setið á sjó til kvölds, þó lítið væri kannski í aðra hönd, svo stopull þótti sjávaraflinn alltaf, miðað við allt annað. Við þennan þátt lífsbjargar skeðu þeir atburðir í fiskiróðrum veturinn 1871 við Dyrhólaey, að 28 menn létu lífið, og eru það cinu slysfarir við sjóróðra við Dyrhólaey, sem um getur fyrr eða síðar. Heyrði ég oft á þetta minnzt, er ég var barn, þó langt væri um liðið, er talað var um slysfarir, og var þetta jafnan nefnt „mann- tapinn við Dyrhólaey“. Skal nú sagt hér frá fyrra slysinu og er að mestu leyti stuðzt við Grímseyjarannál, þar sem sagnir af því hafa ekki varðveitzt nægilega skýrar manna á milli, og bcr eflaust tvennt til um það, í fyrsta lagi, að skipið, er barst á, er aðkomuskip, sem leitar lend- ingar úr næstu róðrarstöð og hitt, að mennirnir sem drukknuðu eru báðir utansveitarmenn. Svo segir í Grímseyjarannál: „28. febrúar var almennt róið í Mýrdal. Gengu í Reynishöfn 2 áttæringar og 1 sexæringur. Stýrðu þeim Hjalti, Finnbogi og Jón synir Einars Jó- hannssonar, hreppstjóra og bónda í Þórisholti í Mýrdal. Sjór var slæmur og brimaði mjög, er á daginn leið. Urðu þeir að leggja frá og út í Dyrhólahöfn. Voru eyjarskeggjar að lenda, er hinir komu og köllu sjó þar fullgóðan. En meðan þeir seiluðu og bjuggust til lendingar, spilltist sjór, því það tók nokkurn tíma, með því allir höfðu fiskað vel og mest lúðu. Þeim Hjalta og Finnboga gekk vel að lenda. En er bátur Jóns, sem var síðastur, tók niðri, reið yfir hann ólag mikið, er fyllti hann þegar og braut. Goðasteinn 55

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.