Goðasteinn - 01.09.1971, Side 67

Goðasteinn - 01.09.1971, Side 67
Sölvi St. Jónsson, Sigurðarstöðum: Tvær sjúkrasögur HÁLSMEINIÐ Árið 1924 var að mörgu leyti erfitt ár. Þá gekk yfir lömunar- veiki scm faraldur, er lagði marga í gröfina, en fleiri voru þó er báru ævilöng merki um lömunina. Veikin kom á mitt heimili en ekki slæm. Þetta vor var ég ekki vinnufær vegna ígerðar í hálsi, er ekki vildi gróa, þó skorið væri í. Var ég því sendur til Akureyrar. Var gert ráða fyrir að ég gengi í ljós. 19. júlí fór ég að heiman, var þá ekki heyskapur byrjaður, sem var óvenjulegt, en þetta er eina sumarið, er ég snerti ekki hrífu eða orf. Tíðin varð líka um sum- arið afar erfið til heyfanga. Ég fluttist fljótlega á Sjúkrahús Akureyrar. Þar var læknir Stein- grímur Matthíasson, sonur þjóðskáldsins. Sjúklingar voru margir af ýmsum gerðum, margir berklasjúkir og þá á fótum, nokkrir höfðu lömun. Berklarnir voru mjög útbreiddir um sveitir, enda var heilsu- hælið að Kristnesi ekki risið upp. Mátti því segja „að allt væri í einum potti“ hvað sjúklingunum viðkom, Nokkrir fcngu brjósthimnubólgu af berklasmitun, þeirra á meðal var ég. Ég var alltaf á fótum um sumarið og ekki fráleit- ur að grípa hcndi til smávika í þessu algjörða athafnaleysi. Steingrímur læknir var hress og glaður og hið mesta hraust- menni, vildi rannsaka allt og lét ekkert mannlegt sér óviðkomandi. Goðasteinn 65

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.