Goðasteinn - 01.09.1971, Side 69
gaman. Á eftir var bögglauppboð. Þá hitnaði í hamsi hjá farþeg-
um, er margir voru sjómenn. Varð úr því þröng og ekki lítill
hávaði. Esjan beið eitthvað eftir fólkinu vegna þessa.
Til Reykjavíkur var komið að kvöldi n. des. Var þá hvasst með
slagviðri. Gerðar höfðu verið ráðstafanir að tekið væri á móti
mér, en engan sá ég sendimann, fór því frá borði með nokkrum
strákum, en þeir hurfu fljótt, er upp í bæinn var komið. Ég veg-
villtur, en sneri mér brátt að lögregluþjóni og spurðist fyrir um
Bergstaðastíg, en þangað var ætlað. Vísaði hann mér til vegar
og gekk áleiðis í áttina. Komst ég brátt í ákvörðunarstað og var
þar vel tekið af frænku minni og manni hennar.
Morguninn eftir fékk ég léðar hjólbörur að sækja dót mitt niður
á afgreiðslu Esju við höfnina. Gekk það ágætlega heim á Berg-
staðastíg 27. Þetta var 12. des. 1924.
Lítið var um bíla á götum eða ekki var nein töf að þeim
með hjólbörurnar. Eftir 43 ár er ég staddur í Reykjavík. Gekk
ég þá upp á Arnarhól og sá yfir þær götur, er ég ók um hjólbör-
unum forðum. Nú runnu bílar svo þétt í halarófu, að varla hefði
hjóibörum verið skotið þar á milli. Á þessu, nær hálfrar aldar
bili, voru breytingarnar svo stórkostlegar.
Á næstu dögum var ég til rannsóknar hjá Claessen, og eftir
samráðum við Guðmund Toroddsen var þeirra álit, að ekki væru
þetta berklar heldur meðfæddur gangur, er þyrfti að fjarlægja með
skurðaðgerð. Lagðist því á Landakotsspítala 19. des., og var á fjöl-
býlisstofu, því þar voru 12 í rúmum, frá 7-8 ára og til örvasa
gamalmenna. Hálsaðgerðin fór fram 20. og tókst svo vel, að ég
fékk fullan bata. Þessir læknar mínir voru hin mestu ljúfmenni, og
reikningurinn var 50 kr. hjá öðrum en 25 hjá hinum, en þá voru
líka peningar einhvers virði.
Heldur var jólahátíðin óyndisleg á sjúkrahúsinu, en þó voru
ljósblettir, hljómlistamenn spiluðu á ganginum afar vel og jólatré
voru á stofunum. Ég var með óeðlilegan hita um jólin og kom á
daginn, að ég var með mislinga, en þeir voru til á Akureyri. En
þetta gekk yfir án eftirkasta, og á gamlársdag var ég orðinn það
hress að ég fór af Landakoti.
Um kvöldið var ég úti á götum með félaga mínum. Skemmtum
Goðasteinn
67