Goðasteinn - 01.09.1971, Page 70

Goðasteinn - 01.09.1971, Page 70
við okkur ágætlega, því flugeldar, klukknahringingar og skipaflaut var mér nýung. Eftir nýárið voru nokkrir dagar, er ég notaði til skemmtunar og fróðleiks, fór í kirkjur, í söfnin, er ég kom þá á í það eina skiptið. Þá kom ég í kvikmyndahús og sá „Island í myndurn" eftir Loft Guðmundsson. Af því var ég ákafiega hrifinn, því íslenzkar kvikmyndir voru þá sjaldgæfar. Síðasta kvöldið fórum við félagar á álfadans og brennu á íþróttavellinum og á eftir á kaffihús. Var það kvöld ágætt. 6. jan. 1925 fór ég heim með ,,Díönu“, norsku skipi; var farþegapláss fremur slæmt en eftir 2 daga var komið til Akureyrar. Eftir 4 daga þar frá var ég kominn heim. Var þá harla feginn, hafði verið hálft ár í burtu og var nú fagnað sem heimt- um úr helju. ÞEGAR ÉG VAR BRENNDUR! Þó hálsmeinið væri læknað, hafði ég þann bagga á baki er var brjósthimnubólgan, er ég fékk á Sjúkrahúsi Akureyrar 1924. Hún gerði mér þann óleik á næsta sumri, að ég var þollaus til vinnu en hiti lítill. Snemma í júlí 1925 fékk ég bréf frá frænda mínum og skólabróður búsettum austur á Fljótsdalshéraði. Þar segir hann frá, meðal annars, sjúkleika sínum og lækningu hjá Grasa-Þórunni, en hún var þá stödd á Seyðisfirði. Brenndi hún hann með hráolíu, en eftir að olían var búin að draga út óheilindin, græddi Þórunn með grasasmyrslum. En eftir þessar aðgerðir taldi hann sig hafa fengið mikla bót, en hann hafði brjósthimnubólgu. Eftir lestur þessa bréfs, fer ég að hugsa sem svo, að slíkar að- gerðir mundu geta átt við mig og því væri heillaráð að leita til Þórunnar. Þá var fyrst að frétta um skipaferðir. Símastöð var næst á Ljósavatni, 20 km frá. Þangað fer bróðir minn, ríðandi, og kem- ur með þær fréttir að eftir nokkra daga komi Goðafoss á austur- lcið til Húsavíkur. Þar með var ferðin ákveðin. Ég beið á Húsavík í 3 daga, því skipinu scinkaði eitthvað. Þá klifraði ég upp á Húsavíkurfjall þar sem það er hæzt og komst þar í lífsháska vegna bratta, en er upp á hæztu bunguna var komið, starði ég fram til kunnu fjallanna og út á sjó, allt til Grímseyjar. Að lokum kom „Goði“ að næturlagi og hafði skamma viðdvöl. 68 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.