Goðasteinn - 01.09.1971, Qupperneq 85
Vilhjálmur Ólafsscni frá Hvammi:
Eitthvað var það
i
Óboðnir gestir
Vorið 1908 var ég hjá Finnboga Höskuldssyni og Elísabetu
Þórðardóttur í Skarfanesi á Landi. Þar skeði þetta atvik seint um
kvöld: Hjónin og börn þeirra voru sofnuð. Ég var nýháttaður, en
Margrét systir Elísabetar var í herbergi fyrir framan boðstofu-
dyrnar við að ganga frá glertaui.
Allt í einu heyrði ég, að rjálað var við læsingu uppi á lofti
yfir rúmi mínu, en svo hagaði til, að hægt var að ganga inn á
loftið utan frá. Þessu næst heyrði ég, að hurðin þar uppi hrökk
upp og að gengið var inn á loftið. 1 sömu svipan fannst mér bað-
stofan fyllast af fólki. Ekkert sá ég en greinilega fann ég þrengslin
kringum mig. Var líkt og strokizt væri við rúmstokkinn, og ys og
þys var að heyra um allan baðstofupallinn, líkt og af dunandi
dansi. Ég kallaði lágum rómi til hjónanna, en þau voru sofnuð.
Þá kallaði ég til Margrétar, sem kom inn í dyrnar. Ég spurði,
hvort hún heyrði ekki fyrirganginn í baðstofunni, en rétt í því
hvarf öll ókyrrð inni. Ég snaraði mér í fötin og fór út til að
skyggnast eftir, hvort þar væri nokkuð kvikt að sjá en svo var
ekki. Veður var blítt og blæjalogn.
Líklega var þetta fyrirboði þess, að hálfum mánuði síðar brann
íveruhúsið í Skarfanesi. Veðri var þá alveg eins háttað og þetta
kvöld. En hvað vildu verurnar, hinir óboðnu gestir?
II
Hvað er að koma fyrir lampann?
Þetta bar til á kvöldvöku í nóvember 1917, er ég var búandi í
Skarðseli á Landi. Við vorum setzt inn, ég og Margrét mín og
Goðasteinn
83