Goðasteinn - 01.09.1971, Qupperneq 88

Goðasteinn - 01.09.1971, Qupperneq 88
Átti hann upptök sín austur með brekkum á Rauðafelli og hét þá Bæjará, en Mjósyndi nefndist hann, þegar fjær dró bænum. Jón lagði leið sína niður með Mjósyndi. Nú er það frá stúlkunni að segja, að þessa sömu nótt kennir hún sóttar. Var hún þá stödd niður með Mjósyndi. Hún lagðist niður, þar sem hún var komin, og eftir stutta stund ól hún svein- barn. Skildi hún á milli og vafði barnungann síðan innan í svuntu- bleðil sinn. Stóð hún síðan upp og vissi naumast, hvað hún átti af sér að gera eða barninu. 1 þessu ráðaleysi var hún, er Jón kom labbandi fram með læknum. Sá hann, að hún var að ráfa þar, bogin og vesaldarleg og bar einhvern böggul í fangi sér. Brátt bar þau saman og voru þá sitt hvorum megin við lækinn. Jón kastaði orðum til stúlkunnar og spurði, hvað hún væri að gera. Hún svaraði með afgæðingi og sagði, að honum kæmi það lítið við. Jón spurði þá, hvort hún hefði ekki orðið vör við svörtu ána, sem húsbónda hennar vantaði. Hún kvað svo ekki vera. Jón sagði þá: „Þú ert vís til að hafa séð hana, þó þú segir ekki frá því.“ Stúlkan gaf því engan gaum, en bað hann að snáfa burtu, því hún ætlaði þarna yfir lækinn. Ekki sinnti Jón því en spurði stúlkuna, hvað hún væri með í svuntunni. Hún kvað hann það engu varða. í sama bili heyrðist eitthvert krimt úr bögglinum. Espaðist Jón þá og sagði: ,,Þú ert þó varla með lambið hennar Svartar? Þú ert aldrei nema vís til að ætla að stela því“. I töluðum orðum stökk hann yfir lækinn og þreif böggulinn af stúlkunni, en hún hneig hljóðandi niður. Jón hélt til bæjar með barnið og stúlkan á eftir með veikum burðum. Jón færði húsmóður sinni barnið. Tók hún því tveimur hönd- um og skaut líka skjólshúsi yfir móður þess. Atburður þessi kom fyrir yfirvöldin, því getum var leitt að því að hún hefði ætlað að farga barninu í læknum. Konan, sem tók á móti þeim mæðginum, og maður hennar, báðu stúlkunni vægðar og sýndu fram á, hvernig að henni hefði verið búið. Sögðu þau, að hún hefði ekki átt að svo góðu að hverfa heima, að aldrei væri nema von til þess, að svo færi, að hún ætti barnið úti á víðavangi. Þessi góðu hjón fengu því áorkað, að sakamál féll niður. Barnið var Hjörleifur, sem síð- ar fór víða um sveitir með lækningar. Veittu hjónin, sem skutu 86 Goðasteinn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Goðasteinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.