Goðasteinn - 01.06.1986, Side 16
það hár og mikill ummáls að þarna hlýtur að hafa verið vist
nokkurra kynslóða. Byggð féll niður sökum sandfoks árið 1861.
Býlið lagðist endanlega undir Seljalandssel er eigandi þess, Sigur-
veig Einarsdóttir á Seljalandi (1812—1905) gaf Högna Sigurðssyni
á Seljalandi próventu sína. Högni varð síðar bóndi í Seljalandsseli.
Á seinni hluta 19. aldar náði gljáin því nær upp að bæjarstæði Hjá-
leigusanda. Foksandur barst þá oft heim í kálgarð á Fornusöndum.
Nú er um 230 m breitt graslendi frá Hjáleigusöndum fram að gljá.
Um 253 m ssv. frá fremstu brún graslendis, fram frá Hjáleigu-
söndum, er aflöng, blásin bæjarrúst sem lítið er nú leift af. Drjúgan
þátt í eyðingu hennar átti það að bændur í Sandhólma sóttu þangað
allt það grjót sem til varð náð úr fornum byggingum. Gamalt
Sandafólk sagði að þarna hefði staðið bærinn Stekkjarbakki. Meiri
líkur væru þó fyrir því að þarna væri eldra bæjarstæði Hjáleigu-
sanda. Guðrún Sveinbjarnardóttir fornleifafræðingur nefnir þessa
rúst FO I, hefði allt eins mátt vera FS I en rétt er að halda fyrstu
merkingu. Ég nefni þessa rúst nú FOI, a og veldur því rúst sem síðar
kom í leitir.
Þann 7. október 1985 gekk ég fram gljána í Sandalandi. Hún var
þá óvenju þurr eftir þurrkasumar. Veruleg hreyfing hafði verið á
sandi og vænir sandskaflar voru í öllum skjólum við melakolla. Ég
fann þá áður óþekkta bæjarrúst um 140 m ssv. framan við rústina
FO I. Þarna var helludreif á litlu svæði og smásteinar, þrjú sleggju-
steinsbrot, einn vaðsteinn og nokkrar fúnar smáspýtur. Þarna var
engin veggjabrot að finna og engan vott af gólfskánum en lítið eitt
af eldhúsösku sást á einum stað. Byggð hefur sennilega staðið þarna
stuttan tíma. Rústina nefni ég FO I, b.
Mesta bæjarrústin á þessu svæði er 310 m til útsuðurs frá FO I,a.
Þar hefur til skamms tíma verið melur en um og eftir 1980 voru
síðustu melræturnar að eyðast þar og í svipinn er öll bæjarrústin í
ljósmáli. Hún nefnist FO II. Þarna eru enn óeyddir húsgrunnar og
fornleifarannsókn væri fremur auðveld. Mestar líkur eru til að
þarna hafi Sandabær staðið frá 15. öld og fram til 17. aldar.
Um 348 m til útnorðurs frá FO II er bæjarrúst að nokkru hulin
af meldyngjum en helludreif milli þeirra bendir til byggðar. f þessa
rúst sótti Helgi Jónasson bóndi á Helgusöndum talsvert grjót laust
14
Goðasteinn