Úrval - 01.10.1976, Blaðsíða 72
70
URVAL
New Yorkborg, fer fram á það við
fjölskyldur, sem rífast um fjármál,
að hver meðlimur geri lista, þar sem
hann tilgreini, hvaða útgjöld og
eyðsla skuli hafa forgang, og síðan
séu listar allra meðlimanna bornir
saman.
Talið inn á segulband. Margir
fjölskylduráðgjafar nota myndsegul-
bönd til þess að skrá, hvernig sjúkl-
ingar þeirra tala og hegða sér, og láta
þá síðan horfa og hlusta á segul-
bandið, svo að þeim takist að gera sér
grein fyrir því, hvernig þeir haga sér í
raun og veru. Laura Singer stingur
upp á ódýrara afbrigði þessarar aðferð-
ar til heimilisnota: takið fjölskyldu-
rifrildið upp á segulband (gangið úr
skugga um, að allir þátttakendur
rifrildisins viti, að verið sé að taka
rifrildið upp á segulband.) ,,Oft
gerum við okkur í raun og veru ekki
grein fyrir því, hvað við emm að
segja né hvernig við segjum það,”
segir hún.
Beitið réttum tjáskiptaaðferðum.
Hegðunarfræðingar hafa samið
nokkrar meginreglur, sem stuðla að
því að draga úr ýfingum. Tvær aðal-
reglur þeirra em þessar:
1) Takið alltaf á ykkur fulla ábyrgð
áeigin hugsunum, orðum og gerðum.
2) Gerið ekki ráð fyrir því, að þið
skiljið afstöðu hins aðilans. Áður en
þið svarið, skuluð þið endurtaka það,
sem ykkur skilst, að hann hafi sagt.
Segið til dæmis: ,,Hafi ég skilið þig
rétt, áttu við að...” Þetta mun veita
mótstöðumanni þfnum tækifæri til
þess að leiðrétta hugsanlegan mis-
skilning.
Leitið samninga. Þegar um samn-
ingaumleitanir og samningagerð er
að ræða, slaka báðir aðilar dálítið
til, en fá einnig viðurkenndar kröfur,
þannig að hvomgur virðist hafa tapað
algerlega. Sem dæmi mætti taka
ungling, sem vill kaupa sér bíl, en
foreldrarnir álíta, að hann sé of
ungur til slíks. Foreldrarnir vilja á
hinn bóginn, að hann sé kominn
heim klukkan tíu, ef hann á að fara í
skóla daginn eftir. Unglingnum er
aftur á móti meinilla við ákveðin
útivistartakmörk. Síðan gera aðilar
samning. Hann samþykkir að vera
kominn heim klukkan tíu, eigi hann
að fara í skóla daginn eftir, en for-
eldrarnir samþykkja, að hann kaupi
sér bíl.
Liggi langvarandi alvarlegar veilur
í innbyrðis tengslum fjölskyldumeð-
lima að baki fjármálarimmum fjöl-
skyldunnar, er ekki líklegt, að hægt
sé að ráða bót á slíku með ofan-
greindum aðferðum. Earl Beatt fjöl-
skylduráðgjafi í Minneapolis nefnir
hliðstætt dæmi, er hann segir: ,,Ef
þið komist að samkomulagi, hvað
snertir völd og stjórn innan fjöl-
skyldunnar, munu vandkvæði á sviði
fjármála og kynferðismála leysast af
sjálfu sér. ’ ’ Abigail Van Buren dálka-
höfundur orðar þetta á hnitmiðaðri
hátt, þegar hún segir: ,,Ég hef