Úrval - 01.10.1976, Side 79
NY HJALP FYRIR HJARTVEIKA
77
VANDAMÁLIÐ, SEM SNERTIR NÝJU
,, BETA-HINDRUNARLYFIN’ ’
í Evrópu eru vísindamenn að gera tilraunir með nýja tegund lyíja,
sem kölluð eru ,,beta-hindrunarlyf” (beta blockers) einu nafni, en þau
gera að engur áhrif catexholamineefna líkamans í sjúklingum, sem
fengið hafa hjartaáfall. í Svíþjóð hafa farið fram tveggja ára tilraunir á
400 sjúklingum, og hafa læknar komist að þeirri niðurstöðu, að lyfíð,
sem nefnist alprenolol, gæti komið í veg fyrir skyndilegan dauða,
dregið úr fjölda dauðsfalla og dregið úr síðari hjartaáföllum,
hjartakveisu og óreglulegum hjartslætti án þess að hafa aukaeiturverk-
anir.
Enda þótt alpenolol sé nú mikið notað um víða veröld, er jafnvel
ekki byrjað að rannsaka það í Bandaríkjunum. Ástæðan er sú, að
sænski lyfjaframleiðandinn hefur ályktað, að það yrði of tímafrekt og
dýrt að verða við kröfum Matvæla- og leyfjaeftirlits Bandaríkjanna,
hvað senrtir sölu og notkun þessa lyfs í Bandaríkjunum. Hann hafði
lokið hinum áskildu ársprófunum, hvað snertir eitrunaráhrif
alpernolols, þegar Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna krafðist
tveggja ára prófana. Það hefði haft í för með sér, að byrja hefði orðið
frá grunni að nýju, þar sem öll þau dýr, sem notuð voru við
ársprófunina, höfðu þegar verið aflífuð í rannsóknarskyni.
Eina lyfið af þessu tagi á bandaríska markaðinum er propranolol.
Það var framleitt erlendis til notkunar gegn of háum blóðþrýstingi og
hefur lengi verið notað þar sem slíkt, og nú hefur Matvæla- og
lyfjaeftirlit Bandaríkjanna löggilt notkun þess í Bandaríkjunum við
óreglulegum hjartslætti og hjartakveisu, en það er langt frá því, að það
hafí verið löggilt til notkunar við tilraunir til þess að draga úr
hjartaáfalli og afleiðingum þess.
Sumir bandarískir læknar hafa látið í ljós það álit sitt, eftir að þeir
hafa rannsakað niðurstöður erlendra tilrauna, að þessi nýju lyf gætu nú
þegar bjargað þúsundum bandarískra mannslífa á ári hverju og þar að
auki dregið út ríðniendurtekinna hjartaáfalla, hjartakveisu og óreglulegs
hjartsiáttar.