Náttúrufræðingurinn - 2023, Blaðsíða 9
verið byggð rannsóknaskáli, þyrlupallur
og veðurstöð. Enn fremur gefur það út
vísindarit með niðurstöðum rannsókna
sem þar fara fram (www.surtsey.is). Í
tengslum við tilnefningu Surtseyjar á
heimsminjaskrá UNESCO árið 2006 var
friðlandið stækkað verulega og nær það
frá þeim tíma yfir eldstöðina alla ofan og
neðan sjávarmáls. Alls varð friðlandið 64
km2 að flatarmáli við þessa breytingu.15
Árið 2008 var Surtsey síðan skráð á
heimsminjaskrána.17−18
Líffræðingar stigu fyrst á land í
Surtsey vorið 1964 og leituðu merkja
um hvort landnám plantna eða annarra
lífvera væri hafið.19−20 Síðan hafa leið-
angrar verið farnir til eyjarinnar á
hverju ári til að fylgjast með landnámi
og framvindu vistkerfis á landi, í fjörum
og á grunnsævi. Ekki hefur þó verið
um árlegar rannsóknir á öllum þessum
sviðum að ræða, og hefur mislangt liðið
milli úttekta eftir þörfum og tiltækum
mannafla. Ýtarlegast hefur verið fylgst
með landnámi æðplanta í eynni.
AÐFERÐIR
Rannsóknir á landnámi æðplantna
Í byrjun júní 1965 fannst smávaxin fjöru-
kálsplanta (Cakile maritima) á norður-
strönd Surtseyjar og seinna í mánuðinum
fleiri einstaklingar sömu tegundar. Fræi
hafði augljóslega skolað á land og spírað í
sandinum.21 Landnám æðplantna í eynni
hófst því áður en gosinu lauk. Í kjölfarið,
sumrin 1966 og 1967, hélt landnám áfram
og tegundum fjölgaði. Til að auðvelda
skráningu og kortlagningu plantna var
árið 1967 tekið upp fast reitakerfi í eynni
og tók það mið af hnitakerfi fyrir landið
allt. Samkvæmt því var eynni skipt niður
í 1 ha (100 × 100 m) reiti.22−24 Þannig var
framan af árum unnt að kortleggja með
allgóðri nákvæmni fyrstu fundarstaði
landnema og afkomenda þeirra. Jafn-
framt voru einstaklingar merktir með
því að reka niður tréhæla með númeri.
Vitjað var um plönturnar með reglu-
bundnu millibili, stærð þeirra mæld og
skráð blómgun og fræmyndun.23,25 Merk-
ingu plantna á þennan hátt var haldið
áfram allt til ársins 1979 en var þá hætt
vegna gífurlegrar fjölgunar plantna og
þéttingar gróðurs í eynni. Fundarstaðir
nýrra tegunda voru þó áfram merktir og
færðir inn á kort með svipuðum hætti
allt þar til GPS-staðsetningartæki komu
til sögunnar um 1995. Gögn um land-
nám og nákvæma staðsetningu plantna
í Surtsey fyrir tímabilið 1965–1990 hafa
nýlega verið tekin saman.23 Jafnframt
hafa niðurstöður rannsókna á land-
námi og útbreiðslu æðplantna í eynni
yfir tímabilið 1965–2015 verið birtar.24
Í báðum tilvikum er tekið mið af hinu
upphaflega reitakerfi.
3. mynd. Landnám æðplantna í Surtsey 1965-2021, heild og fjöldi sem fundist hefur á lífi ár hvert.
– Surtsey colonizing curve for vascular plants during 1965–2021.
1960 1970 1980 1990 2000 2010 2020
Fj
öl
di
te
gu
nd
a
/
N
o.
o
f s
pe
ci
es
80
60
40
20
0
Heildarfjöldi frá 1965 / Cumulative from 1965
Á lífi hvert ár / Alive each year
9
Ritrýnd grein / Peer reviewed