Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2023, Blaðsíða 12

Náttúrufræðingurinn - 2023, Blaðsíða 12
innan við áratug myndaðist því þétt máfavarp á afmörkuðu svæði í hraun- inu á suðurhluta eyjarinnar og fór það stækkandi með árunum. Það kom fljótt í ljós að fuglarnir höfðu afgerandi áhrif á framvindu gróðurs og dýralífs í eynni. Í varpinu tók gróður að þétta sig af áburði sem féll frá þeim með driti og fæðuleifum, sem og af dauðum ungum og fullorðnum fugli. Vaxtarskilyrði fyrir plöntur stórbötnuðu og gróska jó- kst. Enn fremur varð varpið, og næsta nágrenni þess, það svæði í eynni þar sem flestir nýir landnemar æðplantna fundust.24 Það leyndi sér ekki að fuglar voru mikilvirkir við flutning fræs af nýjum plöntutegundum til eyjar- innar. Sennilega hafa máfarnir átt þar drýgstan hlut en aðrir fuglar einnig komið við sögu. Árin 1995–2004 hélt sama þróun áfram en þá hægði þó aðeins á. Alls fundust 18 nýjar tegundir æðplantna (3. mynd, 1. viðauki). Það er eftirtekt- arvert að meðal landnema voru þrjár víðitegundir, og fleiri tegundir, svo sem skarifífill (Scorzoneroides autumnalis), köldugras (Polypodium vulgare) og friggjargras (Platanthera hyperborea), sem líklegt er að hafi borist með vindi til eyjarinnar. Fram að því hafði land- nám æðplantna sem dreifast með vindi verið lítið í Surtsey. Áfram fjölgaði nýjum tegundum ára- tuginn 2005–2014 en þó hægði veru- lega á, og sama er að segja um árin 2015–2021. Nýir landnemar skutu upp kollinum en lítt bættist í þann fjölda sem fannst á lífi í eynni ár hvert eftir 2007. Árið 2021 höfðu alls fundist 78 tegundir æðplantna í Surtsey frá 1965. Af þeim voru lifandi einstaklingar af 66 tegundum þetta ár (3. mynd) og liðlega 40 tegundir höfðu myndað lífvænlega stofna (1. viðauki). Þegar landnám og fjölgun tegunda frá 1965 eru dregin saman í einfaldari mynd eftir áratugum sést að í upphafi fór landnám vel af stað. Liðlega ein ný tegund fannst á ári hverju 1965–2004. Síðan hægði á, en með tilkomu máfa- varpsins náði landnám nýjum hæðum og 1985–1994 bættust um tvær nýjar tegundir árlega í flóru eyjarinnar, og litlu færri árin 1995–2004. Eftir það dró úr og hin síðustu ár, þ.e. 2015–2021, var árleg fjölgun komin niður fyrir eina tegund á ári, sem var hægasta fjölgun frá upphafi (4. mynd). Því má bæta við að í leiðangri til Surtseyjar sumarið 2022 fundust ekki nýjar tegundir æðplantna en alls voru þá skráðar 63 tegundir með lifandi einstaklinga í eynni.39 Hafði þeim því fækkað um þrjár frá árinu áður. Áhugavert er að líta á eftir hvaða leiðum æðplöntur hafa borist til Surts- eyjar í gegnum árin. Þetta ráðum við af líkum, þ.e. af því hvar plönturnar fund- ust í fyrsta sinn og hver aðlögun þeirra er að frædreifingu. Planta sem finnst við rekarönd ofan fjöruborðs hefur að öllum líkindum borist með sjó. Sú sem finnst inni á hrauni við setstaði fugla eða á varpsvæðum hefur líklega borist með fugli sé hún ekki aðlöguð vind- dreifingu. Eins og komið hefur fram námu fyrstar land strandplöntur aðlag- aðar eru frædreifingu með sjó. Hefur lítt bætt þar í frá upphafsárum (5. mynd). Fuglar komu fljótt við sögu og einkan- lega eftir að máfum tók að stórfjölga í eynni. Allt fram undir 1990 var lítið um að æðplöntutegundir sem dreifa fræi eða gróum með vindi næmu land í Surtsey. Aðeins tófugras og klóelft- ing (Equisetum arvense), hvort tveggja byrkningar sem dreifast með vind- bornum gróum, fundust í eynni á fyrstu tveimur áratugunum. Eftir 1990 tóku tegundir sem bera létt vindborin fræ að skjóta upp kollinum í vaxandi mæli (5. mynd). Niðurstaða okkar er sú að þegar á allt er litið hafi fuglar verið mikilvirk- astir við flutning plantna til Surtseyjar. Líkur eru á að liðlega 70% tegunda sem þar fundust til ársins 2021 hafi borist með fuglum. Um 20% tegunda hafa að líkindum borist með vindi en tæplega 10% sjóleiðina (5. mynd). 5. mynd. Fjöldi og líklegar dreifingarleiðir æðplöntutegunda til Surtseyjar 1965–2021, áætlað út frá fyrstu fundarstöðum í eynni og aðlögunum þeirra að frædreifingu. Sýndur er samanlagður fjöldi gegnum árin. - Cumulative curves of dispersal routes to Surtsey most probably used by different vascular plant species during the period 1965–2021. Based on dispersal- mode spectra of the flora and sites of first establishment on the island. 0 1 3 4 6 7 8 9 10 23 22 31 30 37 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 29 32 33 34 35 36 Fj öl di h re ið ra á á ri / N o. o f n es ts y r-1 Máfavarp á suðurhraunum / Gull colony on southern lava fields Norðurtangi / Northern spit Önnur svæði utan varps / Other areas outside of gull colony Reitir / Plots Máfar / Seagulls Fýll / Fulmar 1 2 3 4 5 6 7 8 1960 1970 1980 1990 2000 2010 2020 Fj öl di / N um be r 0 10 20 30 40 50 60 Sjór / Sea Fuglar / Birds Vindur / Wind Náttúrufræðingurinn 12 Ritrýnd grein / Peer reviewed
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.