Náttúrufræðingurinn - 2023, Side 13
Þéttleiki varpfugla
og framvinda
gróðurs í reitum
Þéttleiki varpfugla
Heildarfjöldi hreiðra í gróðurreitum
og við þá hefur verið mjög misjafn
eftir árum tímabilið 2003–2021. Fæst
voru hreiðrin 19 árin 2010 og 2018 en
flest 52 árin 2008 og 2017. Á þessu 19
ára tímabili var meðalfjöldi hreiðra ár
hvert 0–7,2 á 1000 m2 talningarhring.
Yfir tímabilið voru hreiður skráð í
14 af 29 reitum (6. mynd). Flest voru
hreiðrin í reitum 1–10 sem voru í elsta
hluta varpsins (2. mynd). Í reitum 22
og 23 við austurjaðar varpsins jókst
varp á síðustu árum og einnig í reitum
30 og 37 á norðurtanga. Þá fundust
hreiður einnig við reiti 16 og 31 (6.
mynd). Sú niðurstaða sem fengist hefur
með þessum talningum segir ekki alla
söguna. Þétt varp tók að myndast á
suðurhluta eyjarinnar árið 1986, rúm-
lega 15 árum áður en hreiðurtalningar
hófust, og voru reitir 1,3, 4 og 6 á því
svæði (2. mynd). Þar hefur gróður
verið gróskumestur undanfarin ár. Yfir
tímabilið 2003–2021 voru að meðaltali
34 hreiður á ha við reiti (1, 3, 4, 6 –10) í
meginvarpinu á ári hverju.
Plöntutegundir í reitum
Í gróðurúttekt á reitum í Surtsey sum-
arið 2020 voru alls skráðar 27 tegundir
æðplantna. Fjöldi tegunda í reit var á
bilinu 3–15 en meðalfjöldi 7,3. Fæstar
voru tegundir í reitum nr. 6 og 20 (2.
mynd). Hinn fyrrnefndi, sem er í elsta
hluta máfavarpsins, var þakinn breiðu
af túnvingli (Festuca richardsonii) með
ívafi af vallarsveifgrasi (Poa pratensis)
og haugarfa. Hinn síðarnefndi er á
vikrum langt utan varps, lítt gróinn og
með strjálingi af fjöruarfa, holurt (Silene
uniflora) og hundasúru (Rumex acetos-
ella). Flestar voru tegundir hins vegar í
reit nr. 23 sem er við austurjaðar varps-
ins og hálfgróinn. Ríkjandi tegundir í
honum voru túnvingull, vallarsveifgras,
skarifífill og skammkrækill (Sagina
procumbens). Þegar skoðað er hvernig
sambandi gróðurþekju og tegundafjölda
var háttað árið 2020 kemur í ljós að
tegundum fjölgaði skarpt með vaxandi
þekju og fór yfir 10 við 10–40% gróð-
urþekju. Tegundum fækkaði eftir það
og voru þær 4–6 í fullgrónum reitum
(7. mynd).
Af tegundum sem fundust í reitum í
Surtsey 2020 voru 6 skráðar í helmingi
reita eða fleiri. Þetta voru vegarfi (Cer-
astium fontanum), fjöruarfi, skamm-
krækill, holurt, melgresi og vallarsveif-
gras (8. mynd). Ef þetta er borið saman
við árið 2000 kemur í ljós að flestar
tegundir höfðu sótt í sig veðrið frá þeim
tíma. Það endurspeglar landnám nýrra
tegunda og aukna útbreiðslu þeirra og
annarra sem fyrir voru. Fáeinar allút-
breiddar tegundir, þ.e. varpasveifgras,
varpafitjungur, skarfakál og blálilja,
höfðu látið undan síga. Enn aðrar, sem
þá stóðu tæpt, voru horfnar úr gróður-
reitum (8. mynd).
Flokkun reita og tegunda
Við klasagreiningu komu fram fjórir
meginhópar reita (H1–H4, 9.–13. mynd).
Fyrstu tveir hóparnir (H1 og H2) sam-
anstóðu af reitum sem voru í máfavarp-
inu (reitir 1–10) á suðurhluta eyjarinnar
eða við jaðar þess (reitir 22 og 23).
Annars vegar voru þetta reitir á sand-
orpnu hrauni innan varpsins (H1), sem
einkenndust af gróskumiklum melgres-
isbreiðum. Þær voru ríkar af haugarfa,
vallarsveifgrasi, túnvingli, baldursbrá
(Tripleurospermum maritimum) og
túnfífli (Taraxacum sp.) (10. mynd). Í
þessum reitum var þekja 129%, fjöldi
tegunda 5,3 og kolefni í jarðvegi 1,4%
að meðaltali árið 2020. Í þeim og við þá
höfðu þá verið skráð að meðaltali 2,8
hreiður sjófugla frá árinu 2003. Hins
vegar voru reitir á hraunklöppum innan
varpsins (H2) þar sem var gróskuminna
graslendi á mismunandi framvindu-
6. mynd. Meðalfjöldi máfa- og fýlshreiðra í og við gróðurreiti í Surtsey 2003–2021. Reitir 1–23 höfðu allir verið settir niður árið 2003 en
aðrir seinna (sjá 1. töflu) og voru þá utan varpsvæða. Ekki er útilokað að hreiður hafi því verið vantalin við reiti 30 og 37. Hreiður voru talin
árlega á 1000 m2 hringlaga svæði umhverfis reiti. – Average number of seabird nests recorded within and around permanent plots on
Surtsey during 2003–2021. Nests were counted annually within 1000 m2 circular area. Plots 1-23 had all been established in 2003, other
plots later (see table 1) but were outside breeding areas at establishment. However, nests by plots 30 and 37 may be unaccounted for.
0
1 3 4 6 7 8 9 10 23 22 31 30 37 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 29 32 33 34 35 36
Fj
öl
di
h
re
ið
ra
á
á
ri
/
N
o.
o
f n
es
ts
y
r-1
Máfavarp á suðurhraunum
/ Gull colony on southern lava fields
Norðurtangi
/ Northern spit
Önnur svæði utan varps
/ Other areas outside of gull colony
Reitir / Plots
Máfar
/ Seagulls
Fýll
/ Fulmar
1
2
3
4
5
6
7
8
13
Ritrýnd grein / Peer reviewed