Náttúrufræðingurinn - 2023, Blaðsíða 28
INNGANGUR
− HOLUR KORTLAGÐAR
Árin 2001 og 2002 fór fram árleg
kvörðun dýptarmæla í rannsóknar-
skipinu Árna Friðrikssyni í Arnar-
firði. Í hléum var fjölgeislamælir skips-
ins gangsettur og mælt með honum í
firðinum. Unnið var úr þessum gögnum
og útbúið kort af firðinum (1. mynd).
Þetta kort gaf ýmsar upplýsingar um
botn fjarðarins. Þar á meðal komu í ljós
smáatriði í lögun þverhryggja ( jökul-
garða) á botninum.
Samkvæmt ábendingu Guðmundar
Bjarnasonar skipstjóra var ákveðið
síðara árið að mæla langt inn eftir
Geirþjófsfirði. Rækjusjómenn höfðu
sagt honum frá misdýpi á þeim slóðum.
Í ljós kom að um miðbik fjarðarins
var að finna holur í botnsetinu. Sumar
þeirra reyndust vera bæði stórar og
djúpar (2. mynd).
Niðurstöður mælinganna hafa verið
aðgengilegar á heimasíðu Hafrann-
sóknastofnunar og verið kynntar á
fundum en ekki birtar á prenti. Þó er
margt athyglisvert í þeim, og mörgum
hafa fundist holurnar í Geirþjófsfirði sér-
lega áhugaverðar. Þær gáfu tilefni til frek-
ari könnunar, sem hér verður greint frá.
MÆLINGAR KÖFUNAR-
ÞJÓNUSTUNNAR
Í nóvember og desember 2022 gafst
tækifæri til að kanna holurnar í Geir-
þjófsfirði nánar. Mælingabátur Köfunar-
þjónustunnar var í bæði skiptin í verk-
efnum í Arnarfirði, búinn fjölgeisla-
mæli og setþykktarmæli. Var ákveðið að
skjótast inn í Geirþjófsfjörð og freista
þess að afla frekari upplýsinga.
NIÐURSTÖÐUR
Fjölgeislamælingarnar
Dýpi
Dýptarkort Köfunarþjónustunnar er
sýnt á 3. mynd. Þar sjást þrjár stórar
holur og þrjár minni. Þessar holur
komu allar fram í mælingu Hafrann-
sóknastofnunar. Botninn á mælinga-
svæðinu, sem er um miðbik fjarðarins,
er nokkurn veginn sléttur á 69 til 74
metra dýpi, en holurnar ná niður á allt
að 93 metra dýpi. Fjörðurinn grynnkar
bratt að strönd norðan og sunnan
fjarðar, og sést drjúgur hluti suður-
hlíðarinnar á kortunum.
1. mynd. Fjölgeisla-dýptarkort byggt á mælingum Hafrannsóknastofnunar 2001 og 2002.
Dökkblár litur markar mesta dýpið, meira en 100 metrar. − A multibeam chart of Arnar-
fjörður, NW-Iceland, made from Marine Research Institute data from 2001 and 2002.
2. mynd. Mælingar Hafrannsóknastofnunar innst í Geirþjófsfirði leiddu í ljós stórar holur í
botninum. Sjávardýpi á svæðinu er um 70 metrar, en holurnar ná allt að 20 metrum niður
fyrir það dýpi. Byggt á gögnum Hafrannsóknastofnunar. − A detail from the MRI surveys.
This is in Geirþjófsfjörður, and shows holes in the bottom sediment. The holes are dug
into the fjord bottom at about 70 metres’ depth.
3. mynd. Svæðið sem mælt var í nóvember og desember 2022. Litirnir tákna mismunandi
dýpi, og bil milli hnitakrossa er 200 metrar. − A survey by the Icelandic Diving Service in
Nov.-Dec. 2022 provided a more detailed view of the holes.
Náttúrufræðingurinn
28