Náttúrufræðingurinn - 2023, Síða 40
Staðan annars staðar á landinu
Í greinargerð landlæknis frá 1934 kemur
fram að í mörgum þeirra héraða sem svör
bárust ekki frá hafi viðkomandi lækni
verið ókunnugt um veggjalús. Sjálfur
vissi landlæknir þó um veggjalýs í fjórum
þessara héraða, í Reykjavík, á Ísafirði,
á Húsavík og í Hornafirði. Héruð þar
sem læknar aftur á móti staðfestu tilvist
veggjalúsa þetta ár voru Hafnarfjörður
(1 heimili utanbæjar), Bíldudalshérað (2
bæir), Þingeyrarhérað (16 heimili á 13
sveitabæjum), Flateyrarhérað (3 hús á
Suðureyri), Hólmavíkurhérað (1 sveita-
bær), Akureyri (1 hús) og Síðuhérað
(2 sveitabæir).10 Árið 1934 hafði
veggjalúsar því orðið vart í 11 af 49
læknishéruðum landsins. Næstu ár
hélt útbreiðslan áfram. Árið 1942 er
þess getið í heilbrigðisskýrslunum að
allt sé morandi í veggjalús á elliheimil-
inu á Ísafirði og 1944 er sagt frá því að
veggjalús hafi borist til Norðfjarðar með
sjómanni í Englandssiglingum, og sé
komin í sex íbúðir.10 Uppruni veggjalúsa
var því ekki alltaf rakinn til Vestfjarða.
Veggjalús nær hámarki
– Viðsnúningur næst með DDT
Útbreiðsla og algengi veggjalúsa náði
hámarki á Íslandi á árum heimsstyrj-
aldarinnar síðari. En fljótlega eftir að
hið öfluga skordýraeitur DDT bættist
í vopnabúr landsmanna (sjá Innskot-
skafla B) tók veggjalús að fækka og
útbreiðslan dróst saman.16,17 Enn varð
veggjalúsar þó vart á nýjum stöðum, svo
sem árið 1947 á Varmalæk í Skagafirði.10
DDT var notað ótæpilega til að út-
rýma veggjalús. Til að byrja með var það
oft notað samhliða blásýru sem bræld
var innandyra (sjá Innskotskafla A).
Árangurinn lét sjaldnast á sér standa og
er hann gjarnan tíundaður í Heilbrigðis-
skýrslum.10 Á Vestfjörðum var farið að
nota DDT árið 1945 en árið eftir var
veggjalús víða algeng, sem marka má
af því að við skólaskoðun í Þingeyrar-
læknishéraði sáust útbrot eftir veggja-
lýs á 83 börnum.10 Erfiðast var að eyða
veggjalús í gömlum timburhúsum, en
tókst þó á næstu árum.
Staðan í Reykjavík á öðrum
fjórðungi 20. aldar
Veggjalús hafði þegar árið 1923 sest að
í Pólunum í Reykjavík. Næstu ár skaut
hún upp kollinum á sífellt fleiri nýjum
stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Árið
1930 hófust eitranir með blásýrugasi
(sjá Innskotskafla A) en allt kom fyrir
ekki og útbreiðslan jókst jafnt og þétt.
Skjótur viðsnúningur varð þegar farið
var að nota DDT árið 1945 (sjá Innskot-
skafla B). Við lestur Heilbrigðisskýrslna
næstu árin má samt sjá að veggjalúsin
hafði komið sér víða fyrir. Strax árið
1945 var lagt til atlögu við veggjalýs í 43
herbergja húsi í Reykjavík. Árangurinn
varð ágætur og bar ekkert á veggjalús í
húsinu eftir það. Næsta ár var veggja-
lús eytt á 18 stöðum öðrum, í samtals
34 herbergjum. Árið 1947 var eitrað í
120 herbergjum í 27 húsum og árið 1948
var eitrað í 170 herbergjum. Eftir það
fækkaði tilfellum svo hratt að um mið-
bik aldarinnar hætta læknar að nefna
veggjalýs í heilbrigðisskýrslunum.10
Seinni helmingur 20. aldar
Eftir miðbik aldarinnar hvarf veggjalúsin
að mestu á Íslandi en ráðist var til at-
lögu við hana þar sem tilfelli komu í ljós
á sjötta og sjöunda áratugnum. Þekking,
reynsla og árangursrík efni voru til staðar.
Síðast var vitað um „gamla stofninn“
hérlendis á hænsnabúi í Kópavogi á
áttunda áratug aldarinnar og var henni
fljótlega útrýmt.
Ásmundur Reykdal var meindýra-
eyðir Reykjavíkurborgar um árabil. Sagði
hann frá því í viðtali 1989 að þá hefði
árum saman ekki orðið vart við veggja-
lús í Reykjavík, utan eins tilviks sem
kom upp um miðbik níunda áratugarins
þegar veggjalýs fundust í farangri ferða-
langs sem var að koma að utan.18
Þessi staða átti eftir að gjörbreytast
með auknum ferðalögum til landsins.
Fyrstu veggjalýs sem komu til kasta
höfundar höfðu komist á legg í íbúð í
Breiðholtinu í Reykjavík og fundust
í júlí 1997. Smitið var rakið til dvalar
íbúans á hótelherbergi í Bretlandi
haustið áður. Næsta tilvik kom upp
sumarið 2000 og var það í Vogahverfinu
í Reykjavík. Fljótlega hættu veggjalýs
samt að berast að Keldum til greiningar,
einkum vegna þess hversu auðgreindar
lýsnar eru og ummerki eftir þær skýr.
Þolendur vita því oftast við hvað er
að eiga og hafa strax samband við þá
meindýraeyða sem auglýsa það opin-
berlega að þeir hafi sérhæft sig í því að
útrýma veggjalús.
Ný öld
Árið 2004 áætlaði meindýraeyðir hjá
Meindýravörnum Reykjavíkurborgar að
um 10 veggjalúsartilfelli hafi komið upp
í borginni það ár (Ómar Dabny, munn-
legar upplýsingar). Tæpum tveimur ára-
tugum síðar var haft samband við
meindýraeyða sem taka að sér að eyða
veggjalúsum. Kváðust sumir þeirra fá að
jafnaði eitt tilvik á viku að takast á við.
Samkvæmt því skiptir fjöldi veggjalúsa-
tilfella á landinu nú (2023) væntanlega
hundruðum. Auk heimahúsa (sjá Inn-
skotskafla C) eru þessi tilfelli hvað
algengust í ferðaþjónustuhúsnæði, á
hótelum, gistiheimilum og í Airbnb-
íbúðum, og í húsnæði innflytjenda,
vinnubúðum farandverkamanna og jafn-
vel í skálum ferðafélaganna, auk heima-
húsa. Hættan er vitaskuld mest þar sem
margir leita gistingar og gestirnir eru að
koma frá löndum þar sem veggjalúsin
er algeng.
Útrýmingaraðferðir nú
Síðustu áratugina hefur fjöldinn allur af
eiturefnum verið notaður til að útrýma
veggjalús. Þau verða ekki kynnt hér
frekar en fram kemur í Innskotskafla
C. Á síðari árum hafa umhverfisvænni
aðferðir en áður tíðkuðust rutt sér til
rúms, aðferðir þar sem spilað er ann-
aðhvort á hita- eða kuldaþolmörk
veggjalúsarinnar.3,19
Hitameðferð miðar að því að hækka
hitastigið í umhverfi dýranna í tiltekinn
tíma upp fyrir 50°C þar sem rannsóknir
hafa sýnt að veggjalýs lifa ekki við meiri
hita en 45−47°C. Til að hækka hitastigið
eru notaðir sérhannaðir blásarar, yfir-
leitt rafmagnskyntir. Þvott má þvo við
Náttúrufræðingurinn
40
Ritrýnd grein / Peer reviewed