Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2023, Síða 44

Náttúrufræðingurinn - 2023, Síða 44
Þessar greinar eða bókarbrot eru eftir merka vísindamenn, Svíann Torbern Olof Bergman (1735−84), efna- og steinda- fræðing: Rit um þá organísku eður lif- andi hluti á jarðarhnettinum;7 og Þjóð- verjann Anton Friedrich Büsching (1724−93), jarðfræðing með meiru: Undirvísan í náttúruhistoríunni fyrir þá sem annaðhvort alls ekkert eður lítið vita af henni.8 Þorbjörn Bergmann víkur að veggja- lús þegar hann lýsir húsakynnum í höfuðborg Perúríkis: Í Líma, hvar ekkert vatn kemur, eru húsin einungis þakin með þunnum borðviði og litlu af mold til að stela úr sólargeislunum, safnast þar í svo mikil óværa, einkum veggjalýs og flær, að þá bylur feykir stykki af þessu lausaþaki niður í húsasundin vaða menn í millíónum af óværu þessari, eins og svartasta kolareyk. Hér er líklegra − eða hvað? – að viðarætan sé á ferðinni. Verður þó ekki slegið föstu. En í náttúrusögu Büschings segir meðal annars frá skordýrum með fjóra vængi, og þar er þetta: Mörg kyn þeirra eru með hýði yfir vængjunum, sem annaðhvort að nokkru eður öllu leyti skýlir þeim efri vængjum, og er annaðhvort að hálfu eður öllu leyti skelhart. Af hinum fyrri eru margslags járnsmiðir, af þeim síðari eru ýmsar tegundir með sogbroddi, hvar á meðal eru veggja- lýsnar* (jafnvel þó þær sem halda sig í rúmum fólks séu vænglausar), blaðlýsnar, sem almennt kallast mjöldögg, og skarlatsormurinn. Neðanmáls er svo frekari umfjöllun um veggjalúsina: Verst allra þessa kyns er sú veggja- lús sem heldur sig í rúmum; pínir hún einkum skinnveikt fólk mjög um nætur. Mest heldur hún sig í gömlum húsum og rúmstæðum af furutré, helst ef gamall hálmur er í þeim. Ýmis ráð eru við þessari óværð, nl. tóbaksreykur, brennt skinn, kvika- silfur, viktríl-olía hellt á grásalt; hinn svonefndi flugnasveppur, útbleyttur í vatni, og lögurinn ryðinn í holur og rifur nokkrum sinnum, er raunar gott meðal til að drepa veggjalýs. Þær hafa svo að segja önga vængi en þó stofninn til þeirra. Hér eru sannarlega hafin fræðileg kynni Íslendinga af Cimex lectularius. BENEDIKT GRÖNDAL STUTTORÐUR Það er enginn vafi 1878 í Dýrafræði Benedikts Gröndals (104), þar sem í kaflanum um „Skorkvikindi, skordýr“ – undirkafla „Hálfgjör myndbreyting“ – undirundirkafla „Með sogmunni“ er minnst á dýrið, atferli þess og heim- kynni:9 Veggjalús (Cimex) er í útlöndum og sækir í rúm og sýgur blóð úr mönnum. Alþýðufræðarinn Þórarinn Böðvarsson (1825−95), prestur og alþingismaður, er heldur ekki langorður um kvikindið í dýrakynningu í Lestrarbók sem hann gaf út fyrir ungmenni þjóðhátíðarárið 1874.10 Af veggjalúsum eru til margar teg- undir; ein þeirra er sú er heldur sig í rekkjum, flóin, bítur hún sofandi menn, tegund sú æxlar mjög kyn sitt, og getur soltið mörg ár. Hrein- læti og gott loft útrýmir henni best. Hér kallar hann hana fló, en áður hefur komið fram að veggjalýsnar hafa „vængi í kross“ og síðar er rætt um „hinar eiginlegu flær“. PLÁGUR VESTURHEIMS Um það leyti sem Cimex lectularius berst til Íslands stendur yfir mikil deila um flutningana til Vesturheims. Fjöldaferðir þangað hófust árin 1873 og 1874 og standa síðan fram yfir aldamót. Há- marki ná Vesturheimsferðinar árin 1887−88 þegar um 3.200 manns flytjast úr landi – af um 70 þúsund.11 Stjórnvöld í Kanada og norðlægum fylkjum Bandaríkjanna lögðu sig fram um að hvetja Íslendinga til að koma vestur, að ógleymdum agentunum sem höfðu beinan hag af sem mestum flutn- ingum. Vesturfararnir sjálfir skrifuðu heim um ferðina og landnámið – og hylltust til þess að leggja áherslu á kostina en láta gallana liggja í þagnargildi. Þar á móti mæltu ýmsir og töldu ferðunum og flutningunum flest til for- áttu, og mótaðist sú afstaða ekki síst af nokkuð þrútinni þjóðerniskennd. Og sumir reyndu svo einsog gengur að meta hlutlægt kosti og galla. Í þessar deilur blandast veggjalúsin rétt ókomin til Íslands. Það eru að sjálf- sögðu andstæðingar og efasemdarmenn um vesturferðir sem halda henni á lofti til varnaðar. Gísli Jónasson bóndi á Svínárnesi í Höfðahverfi flytur fyrirlestur í Reykja- vík árið 189012 eftir ársdvöl vestra, meðal annars í Manítóba og Dakóta, og telur helstu ókosti landsins, vetrarfrost, ofsa- hita á sumrum, og flugu − sem er versta landplága. Þá er veggjalúsin önnur landplágan, og ekki betri. Hún er þar í öllum húsum, nema steinhúsum, en þau eru fá- gæt. Hvað mikið hreinlæti sem haft er, rúmföt þvegin á viku hverri og rúmstæðin hreinsuð sem best má verða, þó er enginn vegur að verjast þessu kvikindi. Helsta ráðið er að láta rúmin standa langt frá vegg, og láta rúmfæturna standa niðri í vatni. Fætur og hendur bólgna upp undan biti þessara kvikinda og fylgir ákafur kláði. Náttúrufræðingurinn 44 Ritrýnd grein / Peer reviewed
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.