Náttúrufræðingurinn - 2023, Qupperneq 81
ritstjórn til funda og sér um verkstjórn með starfi hennar. Rit-
stjóri er ábyrgur fyrir því að tímaritið komi út á réttum tíma og að
í því sé efni sem uppfyllir kröfur í samræmi við ritstjórnarstefnu.
Á árinu 2022 komu út tvö blöð (fjögur hefti) af 92. árgangi
tímaritsins. Fyrra blaðið kom út í júlí og var 76 bls., en síðara
blaðið kom út í desember og var 88 bls. Er það fagnaðarefni
að bæði blöðin hafi komið út á árinu, en hið síðara hefur oft
komið út í janúar á nýju ári. Nýjum ritstjóra, höfundum, rit-
stjórn og ritrýnum greina er þakkað fyrir þeirra framlag.
RITSTJÓRN NÁTTÚRUFRÆÐINGSINS
Á síðasta ári urðu þær breytingar á ritstjórn að Droplaug
Ólafsdóttir lét af störfum sem formaður ritstjórnar og Esther
Ruth Guðmundsdóttir tók við formennskunni. Droplaugu eru
hér með færðar bestu þakkir fyrir gott og farsælt samstarf um
árabil. Droplaug og Álfheiður ritstjóri voru kvaddar formlega,
og störf þeirra í útgáfu Náttúrufræðingsins þökkuð, með full-
trúum stjórnar HÍN, ritstjórnar og forstöðumanni NMSÍ í
Kaffi Flóru í júní.
Í ritstjórn Náttúrufræðingsins starfa eftirtaldir:
Starf ritstjórnar er ómetanlegt og forsenda þess að efni
tímaritsins er eins vandað og vel valið og raun ber vitni. Stjórn
færir þessu dugmikla fagfólki bestu þakkir fyrir þeirra mikil-
væga framlag og óeigingjarna starf.
Stjórn HÍN hefur skipað ritstjórn en nú á NMSÍ einnig
einn fulltrúa í ritstjórn samkvæmt samstarfssamningnum, og
er það Ragnhildur Guðmundsdóttir, líffræðingur. Ritstjórn-
arstefna fyrir tímaritið hafði verið í endurskoðun um nokkra
hríð af hálfu tveggja fulltrúa stjórnar HÍN. Hún var samþykkt
af stjórn félagsins, forstöðumanni NMSÍ og ritstjórn, og birt
á vef Náttúrufræðingsins. Ritstjóri boðaði ritstjórn þrisvar á
fund um efni blaðsins síðastliðið starfsár. Eins og áður lásu
einstakir fulltrúar með ritstjóra innsendar greinar til að
meta hvort þær stæðust kröfur og ritstjórnarfulltrúar gerðu
tillögur að ritrýnum. Auk þess funduðu ritstjórnin, ritstjóri
og Mörður Árnason, yfirlesari tímaritsins, og ræddu endur-
skoðun leiðbeininga til höfunda. Þær eru komnar inn á vef
HÍN og NMSÍ ásamt nýju ritstjórnarstefnunni. Ekki er lokið
við endurskoðun reglna um meðferð heimilda en þegar henni
er lokið verða þær settar inn á nýja vefinn.
Unnið er að verklagsreglum sem snúa að samskiptum rit-
stjóra við ritstjórn. Jafnframt þarf að samræma upplýsingar
um útgáfuna á vefsíðum beggja aðila útgáfunnar. Það verður
best gert með því að setja hlekk á vefritið sem verður opnað
nú á aðalfundi, 27. febrúar 2023.
VEFÚTGÁFA NÁTTÚRUFRÆÐINGSINS
Eins og á undanförnum árum var unnið að því að koma útgáfu
tímaritsins á vefinn. Í þetta skiptið með vana manneskju við
stjórn verksins. Margrét Rósa ritstjóri er með mikla þekkingu
og reynslu af vefritstjórn og hellti sér í verkefnið af fullum
þunga. Hún gerði þarfagreiningu með úttekt á stöðu vefmáls-
ins og kom með tillögur sem bornar voru undir stjórn og for-
stöðumann NMSÍ. Valin var leið sem talin er bæði farsæl og
hagkvæm. Vefhópur var ritstjóra til halds og trausts og störf-
uðu í honum tveir fulltrúar ritstjórnar, þau Droplaug Ólafs-
Esther Ruth Guðmundsdóttir,
jarðfræðingur & formaður ritstjórnar
Gróa Valgerður Ingimundardóttir, grasafræðingur
Hlynur Óskarsson, vistfræðingur
Hrefna Sigurjónsdóttir, líffræðingur
– fulltrúi stjórnar HÍN*
Ragnhildur Guðmundsdóttir, líffræðingur
– fulltrúi NMSÍ
Sindri Gíslason, sjávarlíffræðingur
Tómas Grétar Gunnarsson, dýravistfræðingur
Þóroddur F. Þóroddsson, jarðfræðingur
* lýkur störfum í lok febrúar.
Horft til Hælavíkurbjargs frá Horni á Hornströndum. Frá vinstri til Hægri: Darri, Atlaskarð, Rekavíkurfjall, Hvannadalur, Hvannadalstindur,
Festarskörð, Sigmundarfell, Göltur og Hæll. Ljósmynd: Ester Rut Unnsteinsdóttir
81