Mímir - 01.04.1962, Side 12
DEILDARFÉLAGIÐ 15 Á R A
Agrip
af
sögu
Mímis
jyjlMIR, félag nemenda í íslenzkum fræðum í Háskóla Islands, átti 15 ára
afmæli í lok nýliðins árs, og verður hér leitazt við að drepa á hið helzta í
sögu félagsins af því tilefni.
Stofnfundur félagsins var haldinn 11. des. 1946. Á þessum tíma var hreyfing
um það meðal nemenda í háskólanum, að nemendur einstakra deilda stofnuðu
með sér félög til þess að koma fram hagsmunamálum sínum og auka kynni innan
deildanna. Mímir hefur starfað óslitið þessi 15 ár, en að vísu hefur starfið
staðið með misjöfnum hlóma. ICemur það ljóslega fram í gjörðabók félagsins,
en hún er helzta heimild að því, sem hér verður rakið. Ekki þarf að efa, að
nemendum í íslenzkum fræðum hafi verið og sé enn þörf á félaginu, en umsvif
fámenns félags nemenda í einstakri háskólagrein hljóta að verða takmörkuð.
Eðli félagsskaparins er af tvennum toga; hann er hagsmunagætir og vettvangur
kynningar.
Það liggur í augum uppi, að hagsmunamálin hafi verið drýgri livöt til félags-
stofnunarinnar en einbert félagslyndi.
Islenzk fræði hafa verið kennd við Háskóla Islands, síðan hann var stofnaður,
og menn hafa löngum viljað kalla iðkun íslenzkra fræða aðalsmark æðstu
menntastofnunar Islands, enda er það sjálfsagt, og er óþarft að rekja ástæður
þess hér. Islenzk fræði hafa því verið kennd í háskólanum í 35 ár, áður en þeir
æskumenn og konur, er við þennan menntabrunn sátu, bundu með sér félag.
Ekki má gleyma því, að nemendur í þessum fræðum voru lengi vel mjög fáir
og þurftu ekkert félag til kynningar. Kennsla í deildinni var einnig fábrotnari
4