Mímir - 01.04.1962, Side 40

Mímir - 01.04.1962, Side 40
að um sama efni: hið innra gihli hiutanna og hina ytri ásýnd þeirra eða þann veruleika, sem speglast í tilliti annarra til hlutanna. 1 báðum verkunum orðar Kiljan þessa megin- staðhæfingu á mjög líkan hátt: það sem sýn- ist, það er það sem er, — annað skiptir ekki máli. Skyld hugsun á sér reyndar miklu lengri sögu í verkum Kiljans. Þegar í Vefaranunt mikla frá Kasmír 1927 gætir þessa, en þar lætur Kiljan munkinn, sem kappræðir við Stein Elliða, hafa yfir þessi orð miðahlaguð- fræðingsins Bonaventura: ... quantum unusquisque est in oculis tuis Domine, tantum est et non amplius ... Þess viriVi sem þú ert í augum Guðs, svo mikils virði ertu og ekki vitund fram yfir það.1 Vefarinn. 1927. 151. lds. Og framar í Vefaranum rekumst við á þessi orð Steins Elliða: líkkert snertir mig dýpra en hið óbrotna og lútlausa, sem á styrk sinn i því að vera það, sem það er. Það er dýrsta gáfan mín að hafa öðlast fagurskygna sál, hæfileikann til að geta miklað dýrðina á ásýnd hlutanna. Vefarinn. 1927. 55. bls. En það er grttnur niinn, að ýmislegt í loka- þætti Strompleiksins eigi sér einnig tengsl við fyrri verk skáldsins. Eða minnir ekki athöfn- in, þegar fulltrúi andans bregðttr kuflinum yfir kúnstner Hansen, okkttr á það, þegar skáldsnillingurinn Sigurður Breiðfjörð sté niður úr sólargeislanum, þar sem Ljósvíking- urinn lá undir súðinni á Fæti undir Fótar- fæti, lagði mihla hönd sína á kvalafullt höfuð Olafs Kárasonar og sagði: þú ert ljós heims- ins —? Og tvíhyggjan á sér einnig nokkurn slóða í fyrri verkum Kiljans. Af tilviljun hef eg rekizt á tvo staði, sem mig langar að vitna til að lokum. Hinn fyrri er úr Vefaranum. 1) Kiljan hefur breytt þessari þýðingu í 2. útg. Vefarans 1948, 120. hls.: þú ert það sem þú ert í guðs augum og ekki vitund frainmyfir það. Það eru orð Steins Elliða, þar sem þau tala sainan, hann og Diljá, á Þingvelli: — Diljá. Maðurinn hefur tvær náttúrur; við því er ekki hægt að gera. Onnur stefnir upp í himinirin, ef þú skilur það, upp í þunna rúmið fyrir ofan gufuhvolfið, alla leið lil Guðs. Hin leitur niður á við, niður í jörðina, þúsund stúngur niður fyrir alt mótak, alla leið nið'ur í ósköpin, þar sem helvíti brennur og frýs. Máð- urinn hefur sál, og maðurinn hefur líkama, og það, sem sálin heimtar, ríður i þverhága við það, sem likaminn girnist, og líkaminn girnist þá liluti, sem steindrepa sálina. Það heitir á latínu: Spiritus adversns carnem. Rctturu sagt: það er ílt og gott í heiminum og manninum er frjálst um valið. ... Maðurinn hefur um tvo kosti að velja, fullkomnun eða fordæmíngu. Vefarinn. 1927. 43.—44. hls. Þá mætti bera niður í Sjálfstæðu fólki. I ræðu, sem Rauð’sniýrarfrúin flytur við hrúð- kaup Bjarts í Sumarhúsum, mælir hún m. a.: — Eg veit ekki, hvort þið kunnist við trúar- brögð I’ersu. Þessi þjóðflokkur trúði því, að guð ljóssins og guð myrkursins ættu í sífclldum ófriði og mönnuin bæri að styrkja ljóssins guð í harátt- unni með því að yrkja akra og vinna að jarðu- hótuin. Það er einmitt þetta, sem bændurnir gera. Þeir eru uð hjálpa guði, ef svo mætti uð orði kveða, vinna ineð gtiði að uppeldi jurta, dýra og manna. Göfugra starf er. ekki til á jörðu hér. Sjálfstætt fólk. I. 1934. 39. Ids. I verkum Halldórs Laxness bíða mörg verk- efni íslenzkra bókmenntarýnenda. Áður en þeim verði full skil gerð, hlýtur að verða skrifaður þátturinn um dúalismann í verkum Laxness. Þau dæmi, sem eg hef tínt til, eru ekki fundin við langa leit eða mikinn lestur, lieldur með því að fletta hlöðum hér og livar. Þeirra er aflað á öngul. Maður verður strax var. En mér segir svo hugur um, að með fyrirdrætti mætti ná að landi drjúgum lilut til kaflans um tvíhyggjuvitund Ilalldórs, um það, hversu áleitin þessi eilífa barátta góðs og ills er við hann, um ljós og skugga í verk- um skáldsins, — heimsljósið og strompinn. 32

x

Mímir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.