Mímir - 01.04.1962, Page 47
Ef dæmi þau úr íslenzkum orðabókum, seni
tekin voru hér að framan, eru svo leiðrétt
samkvæmt þessu, líta þau þannijí lit:
Danska:
statistik: tiilfræði; hagskýrsla, yfirlits-
skýrsla (um ástand í tilteknu efni, oftast í
tölum).
.statistiker: iölfræðingur, hagfræðingur.
statistisk: tölfræðilegur, skýrslulegur; stat-
istisk bureau: hagstofa.
Þýzka:
Statistik: tölfræði; skýrsla, yfirlit.
statistisch: tiilfræðilegur, skýrslulegur.
F.nska:
statisticfal) : tölfræðilegur.
statistician: tölfræðingur, hagfræðingur.
statistics: tiilfræði; yfirlit, skýrsla: statistics
nj crirnc, nf births and deaths: skýrsla um
glæpi, skýrsla um fæðingar og dauða (dauðs-
föll).
Franska:
statisticien: tölfræðingur, hagfræðingur.
statistique: tölfræðilegur (rapports statisti-
ques) ; no. kvk. tölfræði.
Ég vil að lokum geta þess, að þessar til-
liigur eru byggðar á nokkuð takmörkuðum
athugunum mínum á þessu sviði íslenzks
máls, og má því sjálfsagt enn bæta þær nokk-
uð, áður en endanlegri lausn þessara mála er
náð. Hins vegar virðist mér tilgangslaust að
standa á móti eðlilegri þróun málsins í þessu
efni, þó að vissulega verði að telja, að
skemmtilegt væri að geta tekið orðið hag-
fræði aftur upp í málið í sinni upphaflegu
merkingu. En þar sem enn virðist svo margt
vera laust í reipunum í sambandi við merk-
ingu þessara orða, virðist vera full ástæða til
að benda væntanlegum orðabókahöfundum
þjóðarinnar á að leita samstarfs við hina mál-
fróðustu menn innan hagfræðingastéttarinnar
um sérsvið þeirra, til að forðast frekari mis-
skilning og grundroða á þessu sviði.
G Á T U R
1. Góðlynd snótin glöð og 1)1 íð
geymir tíð, en þó er (lauð,
heilsubótar blómstur fríð
býður þeim, sem líða nauð.
2. Upp úr öskustó
liún arkar bá og mjó.
Tróðan var svo tindilfætt,
bún teygði sig og hló.
3. Ilver er það með þétta hlekki,
þetta mun auðráðin spurn,
um helgra tíðum húsa bekki
lioppar og slettir sínu í hvurn?
4. Hver er skepnan hentuga
með liáar eikur,
J)á orma bani lýði lúrar
lifnar og blómgast þess náttúra?
(Ur gátum Jóns Árnasonar).
SVÖR VIÐ GÁTUM
•jninjq
‘Biuods-sfeqpt (g ‘uuissojq (g ‘qpq (X
39