Mímir - 01.02.1974, Blaðsíða 8
Jón, son sinn, jarli, sem mælt var með þeim.
En engu kom Snorri áleiðis við landsmenn.
Flutti hann og lítt. En frið höfðu kaupmenn
góðan þann tíma á Islandi”. (Hák.saga g., 1957,
bls. 69—71)
Islendingasaga segir, að það hafi verið Snorri,
sem fyrst lagði það til við Noregshöfðingja, að
þeir vinguðust við menn á íslandi, síðan bauðst
hann til að beita áhrifum sínum í þá átt, að
Islendingar snérust til hlýðni við Noregskonung.
I Hákonar sögu er það hins vegar Skúli jarl,
sem nefnir það við Snorra, að hann skuli koma
landinu undir Hákon konung. Þar segir einnig,
að það hafi verið Skúli, sem vildi fara herför
til Islands, en þeir Snorri og Dagfinnur lög-
maður ásamt fleirum beittu konunginum fyrir
sig og taka fram fyrir hendurnar á jarlinum.
Vegna orða Hákonar hættir jarl við herförina.
Það er líklegra, að Skúli, sem um þetta leyti
var valdamesti maður Noregs, vildi frekar fara í
stríð við Islendinga en Hákon konungur, sem
þá er aðeins 16 ára gamall, enda átti Skúli
þar sjálfur hagsmuna að gæta.
Þá verður að hafa það í huga, að Sturla
Þórðarson skrifaði Hákonarsögu í konungsgarði
og studdist þar við skjalasafn konunga og frá-
sagnir manna, sem mundu atburðina, en á hitt
ber einnig að líta, að þegar Hákonarsaga er
skrifuð, hefur Skúli jarl beðið lægri hlut fyrir
Hákoni konungi í baráttu þeirra um völdin
í Noregi og sagan er skrifuð af sagnfræðingi
sigurvegarans. Niðurlagsorð þessarar frásagnar
á Hákonarsögu; „En engu kom Snorri áleiðis
við landsmenn. Flutti hann og lítt. En frið
höfðu kaupmenn góðan þann tíma á íslandi",
(Hák.saga g. 1957 bls.71) hafa oft verið skilin
á þann veg, að Snorri hafi gengið slælega fram
í því að koma landinu undir konung. En það
kemur hvergi fram, að Snorri hafi tekið það
verkefni að sér. Það sem Snorra var fyrst og
fremst ætlað, var að friða fyrir norskum kaup-
mönnum. Um þetta leyti var Snorri lögsögu-
maður, svo að ef til vill gerðu þeir konungur
og jarl ráð fyrir, að hann flytti þetta mál á
Alþingi.
Þegar Snorri kom út til íslands, ýfðust Sunn-
lendingar mjög við honum, einkum þó tengda-
menn Orms Jónssonar. Þeir óttuðust, að Snorri
væri sendur af Norðmönnum til að standa í
móti bótum fyrir víg Orms. Björn Þorvaldsson
spurði Snorra, „hvort hann ætlaði að sitja fyrir
sæmdum þeirra um eftirmál Orms. En Snorri
duldi þess". (Sturl. II, bls. 87)
Þess er hvergi getið síðar, að Snorri hafi
minnst á þetta mál framar. Helstu andstæð-
ingum norskra kaupmanna lenti í hár sam-
an, og var Björn Þorvaldsson drepinn í þeirri
viðureign. Norðmenn álitu þá þetta mál vera úr
sögunni, og gíslunum í konungsgarði var sleppt
Það skýrir hvers vegna Orækja kemur svo
fljótt út til Islands afmr.
III.
Á meðan Snorri Sturluson dvaldi í Noregi, bjó
hann einkum hjá Skúla Bárðarsyni. Þeir Snorri
hafa eflaust bundist vináttuböndum, enda voru
þeir á svipuðum aldri, og Skúli jarl hefur getað
frætt Snorra um ýmislegt varðandi sögu norsku
konunganna.
Eftir að hafa verið með jarli einn vemr,
heldur Snorri ausmr á Gautland á fund Áskells
lögmanns Magnússonar og konu hans Kristín-
ar. Snorri hafði áður ort um konu þessa kvæði
það, sem heitir Andvaka, en það gerði hann
að beiðni fyrri manns Kristínar, en sá var
Hákon jarl galinn.
Askell lögmaður var æðsti valdamaður í Svía-
ríki um þessar mundir. Hann var af ætt Fólk-
unga. Nokkra áður en Snorri kemur til Gaut-
lands, höfðu Fólkungar risið gegn Sörkvi kon-
ungi og stefnu hans, en Sörkvir vildi styrkja
konungsvaldið á kostnað höfðingjavaldsins,
hann vildi umbreyta hinu forna konungsveldi
meir í átt við það, sem tíðkaðist sunnar í Evrópu,
þ. e. fastmótað lénsskipulag.
Fólkungar höfðu borið sigurorð af Sörkvi,
og Eiríkur konungur Knútsson felldi hann í
orustu á Gestilreini árið 1210. Þá tók Askell
lögmaður að endurskoða hin fornu lög Vest-
Gauta til að koma í veg fyrir, að konungsvaldið
8