Mímir - 01.02.1974, Blaðsíða 34
6) Austrænu munirnir bera vitni um meiri
tengsl Islands við austræna menningu heldur
en álitið hefur verið hingað til. Þetta á sjálf-
sagt rætur að rekja til ættartengsla eða verzlun-
ar. Ekki er óeðlilegt að álykta, að þeir menn,
sem hrökklazt hcfðu af Noregi, hafi í fyrstu
beint verzlun sinni í aðra átt.
7) Af Landnámu má ráða, að vestrænir
(kristnir) menn hafi einkum setzt að á vestur-
landi. (Auður djúpúðga nam Dali; Jörundur
kristni bjó að Görðum á Akranesi; Asólfur
alskik flutti frá Ásólfsskála undir Eyjafjöllum
vestur á Kjalarnes, því hann undi ekki sam-
neyti við heiðna menn). Hin óeðlilega fáu og
fátæklegu kuml á vesturlandi gætu bent til
trúarbragðaskiptingar eftir landshlutum á land-
námsöld, og að kristni hafi aldrei lagzt þar af
með öllu. Einnig má benda á það, að flest
kirkjuörnefni (t. d. Kirkjuból, Kirkjubær) eru
á þeim slóðum, sem kumlin eru fæst.
HEIMILDIR:
Jón Steffensen: Stature as a criterion of the nutri-
tional level of Viking Age Icelanders. Árb. ísl.
fornlfél., fylgirit 1958.
Jón Steffensen: The physical anthropology of the
Vikings. Jour. Roy. Anthropol. Inst., 1953.
Kristján Eldjárn: Kuml og Haugfé (kaflar I, III, IV,
VI). Bókaútg. Norðri, 1956.
Kristján Eldjárn: Viking archaeology in Iceland. Árb.
ísl. fornlfél., fylgirit 1958.
Kristján Eldjárn: Kuml úr heiðnum sið, fundin á
síðustu árum. Árb. ísl. fornlfél., 1965.
HEIÐRUÐU
SAMBORGARAR!
Ég er borgari
og borga útsvar.
Ég er borgari
og borga skatta.
Ég er borgari
og borga viðlagasjóðsgjald.
Borgari
og borga matinn.
Borgari
og borga allskyns þjónustu.
Borgari
og borga jafnvel hamborgara
og ostborgara
á Hótel Borg
í miðborg
Reyk j avíkurborgar
Það getur varla borgað sig
að vera borgari.
Kristján Jónsson.
34