Mímir - 01.02.1974, Blaðsíða 36
ALEXÍA M. GUNNARSDÓTTIR, HELGA SIGURJÓNSDÓTTIR,
HELGI BERNÓDUSSON.
GUNNAR GUNNARSSON: AÐVENTA
ÞJÓÐFÉLAGSFRÆÐILEG RANNSÓKNARAÐFERÐ
Inngangur
Þjóðfélagsfræðileg (sociologisk) bókmennta-
rannsókn er mjög yfirgripsmikil. Hún getur fal-
ist í því að kanna útbreiðslu og vinsældir til-
tekins skáldverks, hvort munur sé á mati fólks
á ákveðnu ritverki eftir aldri, kyni, umhverfi
eða stétt, hvort ritdómendur móti bókmennta-
smekk almennings að einhverju leyti o. s. frv.
Segja má, að þessi rannsóknaraðferð sé ótæm-
andi. Henni er líka beitt, þegar athuga skal,
hvers konar þjóðfélagsmynd og hvaða lífsvið-
horf koma fram í tilteknu verki ákveðins höf-
undar. Rithöfundar verða fyrir áhrifum af um-
hverfi sínu eins og aðrir menn, og því hlýtur
sérhvert skáldverk að sýna einhvers konar þjóð-
félagsgerð. Skáldinu er hins vegar í sjálfs vald
sett, hvernig það þjóðfélag er og hvaða lífsvið-
horf hann lætur persónurnar túlka. I þjóðfélags-
fræðilegri greiningu er ekkert mat lagt á þær
lífsskoðanir, sem birrast í verkinu eða boðskap
þess, ef einhver er.
Hvers konar rannsókn
Fyrst er að ákveða hvað taka skal fyrir hverju
sinni.
Við reyndum að fá fram mismunandi áhrif
bókarinnar, viðhorf fólks til hennar og athuga
hvort þessi viðhorf færu að einhverju leyti eftir
búsem, aldri, kynjum og mennmn.
Val hópa
í þessu skyni völdum við þrjá hópa fólks.
1. Fólk yfir 60 ára aldri (elst 84ra ára, yngst
60 ára, meðalaldur 70,6 ár).
2. Landsprófsnemendur af Stór-Reykjavíkur-
svæðinu.
3. Landsprófsnemendur í héraðsskóla úti á
landi.
í öllum hópunum voru að sjálfsögðu bæði karl-
ar og konur.
Að þessu vali loknu höfðum við samanburð:
1. tveggja aldursflokka, þ. e. fólks yfir 67 ára
aldri og unglinga 14—16 ára.
2. kynja.
3. þrenns konar búsetu, þ. e. Stór-Reykjavíkur-
svæði, þorp og sveit.
4. mismunandi mennmnar.
Hvað snertir unglingana, tókum við mið af
menntun foreldra. Menntunarhóparnir vom
hafðir þrír, og er það fremur gróf skipting.
1. hópur, fólk með barna- og gagnfræðaskóla-
menntun.
2. hópur, fólk með iðnaðarmenntun.
3. hópur, háskólamenntað fólk, kennarar o. þ. h.
Hvað ó að koma fram — gerð spuminga
Næsta verk var að útbúa spurningar með til-
liti til þess, sem fram átti að koma. Spurning-
arnar reyndum við að hafa þannig, að fram
36