Mímir - 01.02.1974, Blaðsíða 46
Á Mímisfundi 15. marz flutti Vésteinn Óla-
son lektor erindi, sem nefndist Baulaðu nú
Búkolla mín. Var það mjög athyglivert og
fjallaði um byggingu þjóðsagna og ævintýra.
Aðsókn var allgóð. U. þ. b. 30 Mímisliðar
mættu.
Rannsóknaræfing fór fram í Þinghóli, Kópa-
vogi 8. júní. Helgi Guðmundsson lektor flutti
snjalla tölu um Baska á Islandi. Enda þótt
æfingin væri svo síðla, var hún vel sótt, og ber
það áhuga Mímismanna á hugðarefnum sínum
fagurt og ótvírætt vitni.
Vorferð Mímis var aldrei farin. Ætlunin var
að fara til Færeyja, en það reyndist ekki unnt
ýmissa hluta vegna.
Þegar að því kom, að halda skyldi aðalfund,
kom í ljós, að bækur Mímis voru í fórum ritara,
ritarinn erlendis og fórur hans ekki finnanlegar.
Brugðið var því á það ráð að halda kynningar-
kvöld á undan aðalfundi. Var það haldið í
Tjarnarbúð 2. nóvember. Sú nýbreytni var
tekin upp á þessu kynningarkvöldi, að námið
var ekki kynnt, en því meiri áherzla lögð
á að kynna siði og venjur innan félagsins. Auk
þess var bókmenntakynning: Þorsteinn prummp-
ur var kynntur og flutt úr verkum hans.
Með þolinmóðu og fórnfúsu njósnarstarfi
og ýtarlegri eftirgrennslan tókst stjórnarliðum
loks að finna fórur ritara, svo að unnt varð að
blása til aðalfundar.
En það er önnur saga.
Á Juditharmessu 1973.
Guðni Kolbeinsson.
Hafið gát á verðbólgunni T
Hækkið tryggingaryðar
Hækkun trygginga samkvæmt vísitölu
Samvinnutryggingar hafa nú ákveóiö aó
taka upp visitöluákvæöi i skilmála innbús-
-trygginga og lausafjártrygginga, þannig aó
upphæóir hækki árlega meö hliösjón af
visitölu framfærslukostnaöar og byggingar-
kostnaói. Til þess aó þessi ákvæöi komi aó
fullum notum er mjög áriöandi, aö allar
tryggingarupphæöir séu nú þegar leiöréttar
og ákveönar eftir raunverulegu verömæti
þess, sem tryggt er.
Verðlag hefur þrefaldast á tíu árum
Meginvandi islenzks efnahagslifs á undan-
farandi áratugum hefur verió hin öra verö-
bólguþróun. Sl. 10 ár hefur visitala fram-
færslukostnaóar tæplega þrefaldazt og
vísitala byggingarkostnaöar er nú þremúr
og hálfum sinnum hærri en fyrirlOárum
síöan.
Sannvirðistrygging er forsenda fnllra bóta
Ef til vill gera ekki allir sér grein fyrir, aö
sannviröistrygging er forsenda fullra tjón-
bóta, þvi séu eignir eigi tryggöar á fullu
verói, þá verður aö líta svo á, aó trygging-
artaki sé sjálfur vátryggjandi aó þvi, sem á
vantar fullt verö og ber því sjálfur tjón sitt
aö þeim hluta.
I
SAMVINNUTRYGGINGAR
46