Mímir - 01.02.1974, Blaðsíða 51
Alger nýjung í
bankaþj ónustu
Bókhaldsaðstoð Búnaðarbankans
Sundurliðun með lykiltölum
Nú getið þér fengið aðstoð við sundurlið-
un á geiðslum }rðar, sem greiddar eru af
reikningi i Búnaðarbankanum. Er hér um
að ræða sundurliðun greiðslna eftir flokk-
un reikningshafa. Þessi bókhaldsþjónusta
kemur að miklu gagni fyrir þá, sem þurfa
að sundurliða greiðslur sínar, hvort sem
þær eru fyrir heimili, húsbyggjendur,
húsfélög, eða iðnaðarmenn og aðra at-
vinnurekendur.
I lok hvers mánaðar er sundurliðun þessi
skrifuð út af rafreikni. Kemur þá fram í
reikningsyfirlitinu hve mikil fjárhæð hef-
ur verið færð á hvern útgjaldalið í mán-
uðinum, og í heild frá áramótum. Þar að
auki kemur fram hundraðshlutfall (%)
hvers gjaldaliðs af heildarútgjöldum.
Allt, sem þér þurfið að gera, er að færa
tveggja stafa lykiltölu í reit, sem merktur
er BL á tékkaeyðublaðinu.
Þér getið valið um 5 mismunandi bók-
haldsl}d\la, en innan hvers lykils eru 99
flokkar. Búnaðarbankinn mun að sjálf-
sögðu veita allar upplýsingar urn hvernig
þér getið nýtt yður þetta sundurliðunar-
kerfi á sem bestan hátt.
Enn sem komið er, er eingöngu mögulegt
að veita þessa þjónustu viðskiptamönnum
aðalbankans og útibúa hans i Reykjavík.
Bókhaldsþjónusta Búnaðarbankans kostar
kr. 50,00 á mánuði og þar að auki 90 aura
fyrir hvern bókfærðan tékka. Lítið gjald
fyrir einstaka hagræðingu.
I.eitið upplýsinga hjá Búnaðarbankanum
hið fyrsta.
BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS
Austurstræti 5 - Sími 21200
Útibú i Reykjavík: AUSTURBÆJARÚTIBÚ Laugavegi 120
I-IÁALEITISÚTIBÚ Hótel Esju
MIÐBÆJARÚTIBÚ Laugavegi 3
VESTURBÆJARÚTIBÚ Vesturgötu 52 MELAÚTIBÚ Hótel Sögu