Mímir - 01.02.1974, Side 10

Mímir - 01.02.1974, Side 10
en tilgátan um það, að Snorri hafi þegið ísland sem jarlsdæmi úr hendi Skúla hertoga er frá- leit. I fyrsta lagi hafði Skúli ekki enn tekið sér konungsnafn, en í þann tíma var það aðeins á valdi konungs að úthluta því um líkri nafn- gift. I öðru lagi hafði Skúli ekki nokkurn ráð- stöfunarrétt á Islandi. I þriðja lagi var Skúli að undirbúa valdatöku í Noregi en ekki á Islandi. Lengi framan af töldu menn, að fólgsnarjarl merkti leynilegur jarl, en Guðbrandur Vigfús- son bendir fyrstur manna árið 1878 á tengsl viðurnefnisins fólgsnarjarl og eyjunnar Fosn eða Folgsn, sem er utan við mynni Þrándheims- fjarðar. Nils Hallan bendir á það í nýútkomn- um Skírni, (R.vík. 1972) að allar vangavelmr um hina málfræðilegu hlið viðurnefnisins fólgsnarjarl leiði að þeirri niðurstöðu, að það geti ekki merkt leyndarjarl. Enda er ólíklegt, að Styrmir hinn fróði, sem var vinur Snorra og bjó um tíma hjá honum í Reykholti, hafi gengið það til með árstíðarminnisgrein sinni. að koma landráðastimpli á Snorra. Artíð er dánardægur látins manns, á þeim degi skyldi sálumessa hans haldin árlega. Styrmir hefur með ártíð- arminnisgrein sinni viljað tryggja það, að sálu- messa yrði haldin árlega yfir Snorra á réttum degi. Þá er að snúa sér að skýringu Guðbrands Vigfússonar þeirri, að Skúli hafi gert Snorra að jarli yfir eyjunni Folgsn fyrir utan Niðarós í væntanlegu konungsveldi Skúla sjálfs. Fosna var konungseign á miðöldum. Þar var aðeins ein jörð. Þar sat sýslumaður Hákonar konungs Hákonarsonar. Fyrsta verk Skúla hertoga, eftir að hann hefur tekið sér konungsnafn haustið 1239, var að senda menn sína út á Fosnu þeirra erinda að drepa menn konungs þar. En sé það rétt, að Skúli hafi gert Snorra að jarli yfir Fosnu, þá hlýtur sú spurning að vakna, hver hafi verið hinn stjórnmálalegi tilgangur hans með því. Takmark Skúla sumarið, sem Snorri dvaldi hjá honum, var að leggja undir sig Noreg, og honum reið á að koma sér upp góðum bandamönnum bæði heima fyrir og eins í næstu nágrannalöndum. Nils Hallan kemur með þá skýringu á jarlsdæmi Snorra á Fosnu, að Skúli hafi ætlað að setja þar niður stóran hóp vígra Islendinga, svo að áhættusamt yrði fyrir Hákon konung að sigla norður til Niðar- óss. Hallan bendir líka á, að Skúli skaut því á frest að taka sér konungsnafn, ef til vill beið hann eftir liðstyrk Islendinga, sem brást? En seinna um haustið mistókst valdataka Skúla her- toga, og var hann drepinn af konungsmönnum. Hákon konungur var Snorra reiður fyrir sam- skipti hans við Skúla Bárðarson, og krafðist hann þess, að Snorri yrði flæmdur utan á sinn fund ellegar drepinn. Var Snorri höggvinn í Reykholti 23. september 1241. Það verk lét Gissur Þorvaldsson vinna. VI. Allt frá dögum Haraldar hárfagra höfðu kon- ungar í Noregi verið að reyna að skapa sér sterkt ríkisvald, en það er ekki fyrr en á dögum Skúla jarls og Hákonar konungs Hákonarsonar, sem þetta tekst að fullu. Uppreisnir bænda víðsvegar á fyrstu ríkis- stjórnarárum Hákonar konungs Hákonarsonar voru síðustu tilraunir þeirra til að hamla þeirri þróun. Fyrsti votturinn um utanaðkomandi kúg- un er skattlagning á bændur og jarðir þeirra. I Heimskringlu lýsir Snorri oft og vel baráttu bænda gegn skattkúgun konunganna. Hákon góði hlaut t. d. viðurnefni sitt vegna þess, að „þessi Hákon vildi hverjum manni gott og bauð aftur að gefa bændum óðul sín, þau er Harald- ur konungur hafði af þeim tekið". (Heimskr. 1911, bls. 70) ✓ I tímanna rás tókst þó að brjóta niður þjóð- félagsstofnanir ættarsamfélagsins og svipta þannig bændurna því valdi og þeim rétti, sem þær stofnanir höfðu veitt þeim; í stað hinna fornu bændaþinga komu samkundur embættis- manna, þeirra, sem konungur skipaði. Ættar- samfélagið hrynur saman, en konungsríki stór- höfðingja rís á rústum þess. A Islandi hefur bændastéttin þegar um 1200 glatað miklu af efnahagslegu og pólitísku valdi sínu í hendur höfðingja og kirkjuvaldsins. 10

x

Mímir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.