Mímir - 01.02.1974, Qupperneq 18

Mímir - 01.02.1974, Qupperneq 18
leste o. s. frv.) Hómilíubók 93:17 og mýTe (við hlið mætte o. s. frv.) AM. 645 4° 30:22 (Hér segir reyndar Larsson, að ó í móTe sé hugsan- lega leiðrétting á 0). Ef leyfilegt er að álykta, að þau hljóð, sem táknuð eru með ? og 9 hafi ekki verið frammælt og ókringd virðist hér vera á ferðinni tilhneiging til útjöfnunar á mor- fófónemískum skiptum í rótinni. Virðist mega setja þessar myndir, ef marktækar teljast, á svip- aðan bás og myndirnar skjaldi (þgf. et.) og fleiri myndir, sem skjóta upp kollinum á víð og dreif síðar á öldum í u-stofnaorðum, en virð- ast ekki sýna neina ákveðna almenna breytingu eða þróun. 1.2.4 Um þf. flt. á -i (+i-hljv.), sem Noreen og Alexander Jóhannesson telja, að komi fyrir í elztu ritum í nokkrum orðum,1 fannst eitt dæmi hjá Larsson: ?Je (AM. 645 4°, 68:12.). Bandle segir, að um 1300 hafi -i rroðið sér inn í þf. flt. orðsins tigur,2 Sjá nánar um þf. flt., gr. 3.1 hér á eftir. 1.3 Þau frávik, sem um var fjallað í 1.2, sýn- ast ekki benda til þess, að á ferðinni séu neinar meiri háttar breytingar í beygingu u-stofna í fornu máli. Eins og áður gat, er ekki óeðlilegt að búast við því, að þau orð, sem ekki hafa nein morfófónemisk skipti á sérhljóðum í rót- inni, hafi fyrst lagað sig að því beygingar- mynztri, sem kennt er við i-stofna. Það eina, sem gæti bent til þess, er endingarleysi orðanna litr og siþr í þgf. et. Hins vegar hef ég enga sönnun þess, að þessi orð hafi nokkurn tíma haft i-endingu í þgf. et. í íslenzku og auk þess bendir ekkert til þess, að i-endingin hafi verið sérstaklega veik fyrir í öðrum orðum með i í stofni, s. s. friðr, kviþr og liþr. II Nútímamál 2.0 I nútímamáli hefur hinn forni beygingar- flokkur u-stofna misst talsvert af þeim orðum, sem honum tilheyrðu í fornu máli. Það einkenni, sem þau orð, sem í nútíma- máli mætti kalla u-stofna, hafa varðveitt, eru sérhljóðatilbrigðin í rótinni. Að öðru leyti er beyging þeirra ekki frábrugðin beygingu flestra upprunalegra i-stofna og fleiri orða, sem tekið hafa upp sömu beygingu. Endingarnar réttlæta ekki tal um sérstakan flokk. Enda telur Valtýr Guðmundsson hina fornu u-stofna undirflokk þess beygingarflokks, sem hann kallar -ir -ar beygingu. Það, sem hefur þá gerzt, er, að u- stofnar, sem ekki höfðu sérhljóðatilbrigði í stofni, hafa fallið inn í aðra beygingarflokka. Til þess að gera fullkomna grein fyrir stöðu hinna fornu u-stofna í beygingarkerfi nafnorða í nútímamáli þarf að koma til gagnger athug- un á öllu beygingarkerfi sterkra nafnorða, og er því það, sem um það segir hér, einungis óljósar hugleiðingar. Segja má, að að slepptum þeim gömlu u- stofnum, sem ekki höfðu (eða hafa) sérhljóða- tilbrigði í stofni, séu fjögur beygingarsnið í nútímamáli, sem telja má arftaka u-stofnabeyg- I II III IV köttur fjörður háttur sonur kött fjörð hátt son ketti firði hætti syni kattar fjarðar háttar sonar kettir firðir hættir synir ketti firði hætti syni köttum fjörðum háttum sonum katta fjarða hátta sona Eftir mynztri I beygjast allmörg orð. Gera má grein fyrir beygingu þeirra með því að telja grunnmynd rótarmorfemanna hafa a að sérhljóði og gefa morfófónemískar reglur, sem breyta rótinni eftir beygingarendingum. Eftir mynztri II beygist tæpur tugur orða samkvæmt Valtý Guðmundssyni (bls. 60.), og 1 Sjá Altnord. Grammat., bls. 274. og Isl. tunga í fornöld, bls. 207. 2 O. Bandle: Die Sprache der Guðbrandsbiblía, Bib- liotheca Arnamagnæana, Vol. XVII, Khöfn. 1956, bls. 241. Sbr. Björn Karel Þórólfsson: Um íslenzk- ar orðmyndir á 14. og 15. öld, Rvík. 1925, bls. 22. 3 Sjá Valtýr Guðm.: Isl. gr., bls. 58. 18

x

Mímir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.