Mímir - 01.02.1974, Qupperneq 27

Mímir - 01.02.1974, Qupperneq 27
SILJA AÐALSTEINSDÓTTIR: ÞANKAR UM BARNABÆKUR Ekkí er mér allsendis Ijóst, þegar ég sest við ritvélina, hvað ég á að segja um barnabækur síðastliðins árs. Eg hef af gæsku minni nú um nokkurt skeið skrifað um barnabækur fyrir eitt dagblaðið í borginni, og gekk allt vel í fyrsm. Utgefendur voru óðfúsir að senda mér bækur sínar til umsagnar. En brátt fór að bera á tregðu. Eg fékk á mig slæmt orð. Og nú eru sumir útgefendur hættir að senda mér bækur sínar, sumir velja mér þær bækur, sem þeir halda að mér falli í geð, en aðrir bjóða skrattanum enn birginn. I ofanálag hefur mér ekki tekist enn að þrælast gegnum allan bunk- ann, sem mér þó var sendur fyrir síðustu jól. Þetta verður því ekki tæmandi yfirlit heidur aðallega athugasemdir um nokkrar íslenskar bækur sem komu út 1973. Barnabækur finnst mér eiga að gegna þrí- þætm hlutverki. Þær eiga að þroska með börn- unum góðan bókmenntasmekk, sem fylgir þeim síðan ævilangt. Þær eiga að hjálpa börnum tii að skilja samfélagið, sem þau búa í, vekja þau til umhugsunar um það sem illa fer þar og efla með þeim skilning og ást á mannfólkinu. Og þær eiga að vera börnunum til yndis og skemmrnnar, síðast en ekki síst. Enn sem fyrr er dreifbýlislíf í þátíð ríkjandi í íslenskum barnabókum. Endurútgáfur áHjalta- bókunum, Undraflugvélinni og Skemmtilegum skóladögum valda hér nokkru um, en auk þeirra bóka má nefna bækurnar um Siggu og skessuna, Sumardaga í Stóradal og Púkana á Patró. Aðeins þrjár af fjórtán íslenskum bók- um, sem ég hef undir höndum, gerast í þétt- býli í nútíðinni. Og líf nútímabarns í borg er efni aðeins einnar bókar beinlínis. Það er sagan Úlla horfir á heiminn eftir Kára Tryggvason. Úlla er á barnaheimili og á einstæða móður; sagan segir í smáþáttum frá daglegu lífi henn- ar. Tvær sögur, Asta og eldgosið í Eyjum eftir Rúnu Gísladóttur og Þóri S. Guðbergsson og Niður um strompinn eftir Ármann Kr. Einars- son, sækja efni sitt í atburði sama árs og þær komu út, eldgosið á Heimaey. Þetta er lofs- vert framtak, en þó mætti örlítið að því finna. Þegar atburðir eru nýafstaðnir eins og Heima- eyjargosið, hlýtur menn að skorta yfirsýn til að gera því verulega vandleg skil. Það liggur við að manni detti í hug, að verslunarsjónarmið hafi einhverju ráðið um, að höfundar flýttu sér svona voðalega að koma þessum bókum frá sér. Um vanda barna frá Vestmannaeyjum, sem skyndilega voru rifin upp án þess að hirða um ræturnar, þyrfti að fjalla af nærfærni og næmri tilfinningu og fylgja efninu eftir lengur en nokkra daga eftir byrjun gossins. Tvær sögur enn gerast í nútímanum, en hvorug þeirra fjallar um daglegt líf barna í landinu, eða það ætla ég að vona. Hljóðin á heiðinni eftir Guðjón Sveinsson gerist uppi á öræfum og fjallar um viðskipti unglinga og forhertra sauðaþjófa. Hin sagan er Rikki og Nikki berjast við eiturlyfjasmyglarana eftir Einar Loga, og segir titill allt sem segja þarf um efnið. Sagan gerist í þorpi úti á landi. Þangað sendir höfundur söguhetjur sínar, þótt þeir búi annars í Reykjavík. Þorp úti á landi er viðráðanlegra umhverfi en höfuðborgin. Báðar þessar sögur eru eftirlíkingar á útlendum glæpa- 27

x

Mímir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.