Mímir - 01.02.1974, Blaðsíða 37

Mímir - 01.02.1974, Blaðsíða 37
kæmi lífsviðhorf svarandans, með því að láta hann taka afstöðu til persóna og boðskapar höfundarins. Einstakar spurningar (Sjá spumingalista á nœstu síðu) Spurning A miðaði að því að fá fram bók- menntasmekk, hvort slíkar bókmenntir höfði á mismunandi hátt til hópanna. Spurningar B og C miðuðu að því að fá fram viðhorf til þeirrar kynslóðar, sem bókin fjallar um og þeirrar, sem nú lifir og hvort fólk telji, að um breytingu sé að ræða. Ennfremur ætti spurning B að leiða í Ijós, hvort sagan virðist trúverðug. Spumingar D og E voru til að kanna lífsviðhorf fólks, það er látið taka afstöðu til gerða Bene- dikts. 7 spmningu F var fólk látið taka afstöðu til þess, sem höfundur telur tilgang lífsins. Framkvœmd Skólarnir, sem tóku þátt í könnuninni voru Gagnfræðaskóli Garðahrepps (landsprófsdeild), Héraðsskólinn á Eiðum (landspr.). I bekk Gagn- fræðaskóla Garðahrepps voru 15 stúlkur og 12 piltar, á Eiðum 15 stúlkur og 5 piltar. Tvær af 15 stúlkum í Eiðaskóla voru af Stór-Reykjavíkursvæði og bættum við þeim í hóp Gagnfræðaskólans í Garðahreppi, þannig að tölurnar breytast í 17 stúlkur fyrir Garða- hrepp og 13 stúlkur fyrir Eiða. Islenskukennarar bekkjanna dreifðu bókum til nemendanna og lögðu síðan fram spurninga- listana í kennslustund og létu svara. Hjá eldra fólkinu, sem var 20 manna hópur úr Kópavogi, 6 karlar og 11 konur, en 3 svör- uðu ekki, urðum við að hafa þann hátt á að dreifa samtímis bókum og spurningalistum. FÓr- um við á skemmtun, sem Félagsmálastofnun Kópavogs hélt fyrir eldri borgara, kynntum málið og báðum fólk að gefa sig fram. Ekki fengum við nógu stóran hóp þannig, svo ekki var um annað að ræða en að ganga á milli fólks og biðja um aðstoð. Voru þá flestir fúsir til samstarfs. Fékk þessi hópur tæpar tvær vik- ur til umráða. Síðan var úrlausnum safnað saman og unnið úr þeim á þann hátt, sem sést á meðfylgjandi töflu. Gallar Eins og við var að búast kom ýmislegt fram, sem betur hefði mátt fara, þegar farið var að vinna úr úrlausnunum. Það hefði t. d. verið forvitnilegt að spyrja fólk hvort það hefði lesið bókina áður. I spurningu D slæddist meinieg villa. Þar átti að standa innan sviga: Krossið í þá reiti, sem með þarf. Fjórði liður í þessari spurningu er ekki alveg nógu skýr, hann getur orkað tvímælis. Enn- fremur hefði verið betra að raða liðum þessarar spurningar öðru vísi upp. I spurningum E og E hefði einnig þurft að vera valfrjálst svar. Að vísu ætti G liður að bæta nokkuð úr skák, en hitt hefði verið greini- legra. Að lokum ber svo að geta þess, að hópar þessir era ekki nógu stórir til að verulegar ályktanir sé hægt að draga af könnuninni, en slíkt hið sama gildir um flestar kannanir af þessu tæi. Nokkrar skýringar og athugasemdir Á spurningablaðinu var í D-lið gefinn kostur á öðru svari. Þau svör eru prentuð hér. Fyrst frá eldra fólki: „Haft ánægju af dýrum." / „Af samúð og þörf til að hjálpa þeim, sem eru í nauðum staddir." / „Til að bjarga lífi fjárins." / „Af eigin metnaði." / „Hann fann sjálfan sig." / Yngra fólk sagði: „Af hjálpfýsi." / „Líka til að geta verið einn með sínum bestu vinum, og honum líður vel í kyrrðinni inni á milli fjall- anna." / „Hann kunni einverunni vel, og að vera innan um dýr." / „Að bjarga kindunum." / „Vegna trúar sinnar." 37
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Mímir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.