Mímir - 01.02.1974, Blaðsíða 45

Mímir - 01.02.1974, Blaðsíða 45
STARFSANNÁLL MÍMIS Aðalfundur Mímis var haldinn 20. október 1972 í stofu 308, Arnagarði. Þar var Guðni Kolbeins- son kjörinn formaður félagsins og aðrir stjórn- arlimir Guðrún Jónsdóttir, Sæmundur Rögn- valdsson, Sölvi Sveinsson og Þórhallur Braga- son. Skipti stjórnin þann veg með sér verkum, að Sölvi skyldi hafa fjárreiður með höndum, Guðrún rita það sem þyrfti, en þeir Sæmundur og Þórhallur útbreiða ritið Mími. Kynningarkvöld var haldið í Dentalíu heit- inni í Bolholti 4, hinn 11. dag nóvembermán- aðar. Þar var fyrsta árs nemum kynnt, hvað í vændum væri, og sáu Höskuldur Þráinsson og Helgi Skúli Kjartansson um það. Bókmennta- kynning var einnig meðal dagskrárliða, og var kynnt skáldið Kálhaus og lesið úr verkum þess. Síðan hófust almennar kynningar, og leið kvöld- ið við söng og gleði, drykkju og dans, og kynnt- ust sumir Mímisliðar svo vel við dansiðkanir, að þeir kinntust. Haustferð félagsins var farin 19. nóvember, og voru kannaðar söguslóðir á Reykjanesi undir traustri forystu Bjarnar Þorsteinssonar prófessors. Tókst ferð þessi hið bezta, og voru menn fullir ánægju, þegar heim kom. Mímisfundur var haldinn 13. desember í stofu 201, Árnagarði. Þar flutti Þorkell Gríms- son safnvörður erindi um Reykjavík á liðnum öldum og fornleifarannsóknir þar. Var erindi þetta bæði fróðlegt og skemmtilegt, og skugga- myndir, sem sýndar voru til skýringa, rýrðu ekki gildi þess. Að lokum var drukkið kaffi og spjallað um fornleifagröft og bústað Ingólfs. Mímungar sýndu fundi þessum eigi alllítið tóm- læti; mætm 8 þá flest var. Félag íslenzkra fræða og Mímir stóðu fyrir rannsóknaræfingu á Gamla-Garði 22. desember. Sigurður Líndal prófessor flutti þar ýtarlegan fyrirlestur um pólitískar hugmyndir í Heims- kringlu. Æfing þessi var fjölmenn og tókst mætavel. Sýnir það áhuga Mímunga á viðfangs- efnum sínum, að síðustu rannsakendurnir luku ekki störfum fyrr en á sjötta tímanum morgun- inn eftir. Sagnfræðiráðstefna var haldin í febrúar. Voru þrír fundir með nokkurra daga millibili, þannig að unnt væri að taka saman og dreifa helztu niðurstöðum síðasta fundar á þeim næsta. Urðu oft fjörugar umræður á ráðstefnu þessari, og skiptust kennarar og nemendur á skoðunum. Þarf ekki að fjölyrða um gagnsemi slíkra við- ræðna. Páll Skúlason lektor mætti á Mímisfundi 15. febrúar í stofu 104, Árnagarði og flutti þar erindi: Semiologi — Semantic. Voru fundar- menn mjög áhugasamir og meðan kaffi var drukkið var Páll spurður að mestu spjörunum úr. Fjöldi fundarmanna var 14, — að Páli meðtöldum. Þorrablót Mímis fór fram í Þinghóli í Kópa- vogi 10. marz. Heiðursgestur var Bjarni Olafs- son, og flutti hann snjalla ræðu, innblásinn af húsnæðinu. Þórhallur Bragason las upp Tummu Kukku, formála að kvæði úr Eddu Þórbergs Þórðarsonar. Sverrir Páll Erlendsson mælti fyrir minni kvenna — og mæltist skörulega. Sungið var úr hinni stórkostlegu söngbók félagsins, Tummu Kukku, sem kom út þennan sama dag. Einnig var iðkuð fótmennt og kverkar vættar, og var mál manna, að lítt hefði þar á gleði skort. 45
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Mímir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.