Mímir - 01.06.2007, Page 46
Ljóðasamkeppni Mímis
Ritnefnd Mímis efndi til ljóðasamkeppni á
haustdögum. Dómnefnd var fengin til að velja
þrjú bestu ljóðin og gefa þeim umsögn. Dóm-
nefndina sldpuðu Bergljót S. Kristjánsdóttir,
prófessor í íslenskum bókmenntum, Bragi
Olafsson rithöfundur og Haukur Ingvarsson
bókmenntafræðingur. Keppnin hlaut ágætar
undirtektir og þölmargir sendu inn ljóð úr fór-
um sínum en höfundar skiluðu ljóðum undir
dulnefni.
Atli Freyr Steinþórsson, B.A.-nemi í ís-
lensku, bar sigur úr býtum fyrir ljóð sitt
„Undrask". Svo skemmtilega vildi til að dóm-
nefnd valdi einnig ljóð eftir hann í annað og
þriðja sæti. Þau heita „Tælendingar og hysterían“
og „Millistjórnandinn í fílabeinsturninum". Atli
Freyr skrifaði undir dulnefninu Köttur. Sigur-
ljóðin þrjú eru birt hér.
í verðlaun var bólcin Islenskir hellar sem
Edda útgáfa veitti af miklum höfðingleik. Ur-
slit Ijóðasamkeppninnar voru gjörð kunn á árs-
hátíð Mímis sem haldin var 9. mars sl.
Umsögn dómnefndar:
„Köttur sendir ekki aðeins eitt smellið ljóð í
keppnina heldur syrpu ljóða sem vitnar um
sterk tök á formi, máli og stíl. Syrpan einkenn-
ist meðal annars af samræðu við íslenska bók-
menntasögu þar sem snúið er upp á hefð-
bundnar túlkanir og skilning. í fleiri en einu
ljóða Kattar rís ný merking með óvæntri teng-
ingu nútíðar og fortíðar. Skýrt dæmi þess er sig-
urljóðið „Undrask“ en í því eru hinir dramatísku
Málfríður Gylfadóttir ajhendir Atla Frey verðlaun-
in. Mynd: Birgir Freyr Birgisson.
og sögulegu atburðir á Stiklastöðum tengdir
hversdaglegri reynslu nútímamanns svo að les-
andinn hlýtur að brosa út í annað — eða skella
upp úr. 1 ljóðunum „Tælendingar og hysterían“
og „Millistjórnandinn í fílabeinsturninum“, sem
einnig eiga skilið sérstaka viðurkenningu, eru
ákveðin þjóðfélagseinkenni — kynþáttafor-
dómar, æsifréttamennska og stéttskipting — af-
hjúpuð með ísmeygilegum húmor þar sem
óvænt smáatriði lýsir vítt svið eða munurinn á
sýnd og reynd er í fyrirrúmi."
44