Mímir - 01.06.2007, Blaðsíða 71
annar studdi sig upp við steininn, en hinn var
að binda á sig skóinn hálflotinn og studdi
bakhlutanum að steininum, og sýndist þeir
votir í fœturnar og rauðamýrugir.
(18) „Það,“ segir hinn, „að ég fekk átumein neðan
í báða fœturnar so ég varð draghaltur og þoldi
seinast ekki áfeturnar hót að stíga [...]“
Af fornmálsorðabókunum og gagnasöfnunum
með fornum textum í þessum undirkafla að
dæma má draga þá ályktun að no.fótur hafi oft-
ast verið notað í réttu kyni í forníslensku. Kven-
kynsmyndirnar af no. fótur í þf.ft.m.gr. hafa
verið meira áberandi og jafnvel fleiri á 16. og
17. öld. á meðan karlkynsmyndirnar í ft. með
greini hafa lifað góðu lífi á 14. og 15. öld. Und-
ir 19. öld hefur nafnorðið verið oftar verið not-
að í karlkyni í þf.ft.m.gr. þó að einstakar
kvenkynsmyndir séu líka til. Þessi þróun, þ.e.
að no.fóturvcxb'i kvenkynsorð í þf.í ft. með eða
án greinis, með eða án fornafns, lýsingarorðs
eða töluorðs byrjar á 16. öld og heldur áfram
fram á okkar daga og stendur enn (sbr. 3.3).
3.3 Nafnorðið fótur í nútímaorðabókum og
gagnasöfnum með nútímatextum
í íslenzku orðtakasafni (Halldór Halldórsson
1901:154) og í orðabók Sigfúsar Blöndals
(1920-24:215) er að finna eftirfarandi dæmi
sem sýnir notkun no.fótur í kvenkyni:
(19) því þarf nú raunar elcki að gera áfetarnar um
þá, sem taka eftirlaun samkvæmt eftirlauna-
lögunum frá 1904. Alþ.II.B.1.707
Kvenkynsmynd no.fótur er sýnd innan sviga í
Islenzku orðtakasafni (Halldór Halldórsson
1901): gera e-u áfieturna(r) og sú skýring gefin
að þetta orðtak sé kunnugt frá 20. öld, en það
styður í raun þá tilgátu að no. fótur sé byrjað að
sýna veikleika í kynákveðni sinni.
I Handbók um málfar ítalmiðlum (1998:94),
sem inniheldur leiðbeiningar um viðurkennda
notkun nafnorðsins, er bent á að ekki sé sagt
kaldarfietur.
í gagnasafni Morgunblaðsins á netinu,
mbl.is, voru greinar skoðaðar sem innihalda
nf.- eða þf.-myndina fætur(nar) en fyrstu
dæmin sem fundust eru frá 1988. Valdar voru
þær setningar sem sýna notkun no. fótur í
kvenkyni, þ.e. þegar engin karlkynsmynd kem-
ur fram í tiltekinni grein, sbr. (20), eða tvær
myndir (karlkyns- og kvenkynsmynd) er að
finna í einni og sömu grein, sbr. (21-22). Þetta
sýnir óvissuna sem ríldr varðandi notkun nafn-
orðsins í réttu kyni:
(20) sambærilegar umræður heima snúast frekar
um að spá í hvort við stöndum lóðrétt eða lá-
rétt í fieturnar.
(21) Það var þegar hann keyrði yfir fæturna á
kunningja sínum sem haft var samband við
lögreglu vegna gruns um að ekki væri allt með
felldu hjá ökumanninum. [...] Sami öku-
maður var svo aftur á ferð áleiðis norður í land
um klukkan fimm í morgun, ásamt kunn-
ingjanum sem hann hafði ekið yfirfæturnar á
kvöldið áður.
(22) Maðurinn misstifeturnar í kjölfar blóðrása-
sjúkdóms sem hann segir reykingarnar hafa
orsakað [...] þegar blóðrásarsjúkdómur varð
til þess að taka varð af honum báðafætur.
Að auki voru annars konar textar skoðaðir á
netinu þar sem no.fótur er notað í kvenkyni í
þf.ft. með ákvæðisorði í karllcyni. Textarnir á
netinu urðu fyrir valinu af því að þeir sýna ein-
hvers konar ritað talmál, ef svo mætti að orði
komast. Textarnir eru oftast óformlegir og ætl-
aðir vinafólki, ættingjum, kunnugum og ókunn-
ugum o.s.frv. (dæmin eru frá 21. öld):
(23) ég eins og Jesús Kristur, naglhreinsaður stend
í báðafæturnar gummijons.is/myndir2.htm
(24) Skemmtanagildislega séð komast fáir með
tærnar á sömu eyju og þessi feiti Breti hafði
báða fæturnar
kvikmyndir.com/gesturdrgunni.htm
(25) og hann setti gifs á báða fæturnar á mér
barnaland.is/barn/4607/vefbok/33
69