Úrval - 01.12.1979, Page 5
3
HVER
FANN UPP
KARTÖFLUFLÖGURNAR?
Auðvitað George Crum! (Sjá næstu síðu). Hér er stutt yfírlit yfír
nokkra uppflnningamenn, draumóramenn og sérvitringa —
frumlega menn, sem ýmist lítið eða ekki stendur nokkuð um í
venjulegum uppsláttarritum. Þeir eiga það yfirleitt sameiginlegt
að horft hefur verið fram hjá þeim, eða þá að þeir hafa meira að
segja verið sneyptir. Engu að síður hafa þeir haft veruleg og
varanleg áhrif á vestræna menningu.
Stvu ú r
Famous Amcriums Vou Ncvcr
Kncw Hxistcd
Brutc I clton and Mark Fowlcr
Clarence A. Crane framleiddi
súkkulaði, en yfír heita sumar-
mánuðina datt salan á því niður. Svo
Crane tók það til bragðs að framleiða
harða mintu yfir sumarmánuðina
(hún rann ekki í sundur í
sumarhitunum eða myglaði) og fékk
pillugerðarmanninn nágranna sinn
til þess að pressa mintuna í rétta
lögun. En pilluvélin var eitthvað
biluð, og í staðinn fyrir harðar tölur
komu litlir hringir úr henni. Crane
lét það ekki á sig fá heldur sendi
,,Life Savers” (Björgunarbelti) á
markaðinn árið 1912. Síðan hafa yfír
12.000.000.000 pakkar af þessum
brjóstsykurshringjum selst.
Árið 1937 fann Sylvan N.
Goldman í Oklahoma City upp
innkaupavagninn. Hann átti og rak
tvær súpermarkaðakeðjur, og tók
nærri sér að horfa á viðskiptavinina
flýta sér að kassanum strax og þeir
voru búnir að fylla eina litla körfu.
Nú til dags er af fjórhjóla farar-
tækjum aðcins bíllinn meira notaður
heldur en innkaupavagnarnir. Og
Smithsoniansafnið hefur orðið sér úti
um einn af fyrstu vögnunum hans
Goldmans — sem merkilegan
safngrip.
Það var Anton Feuchtwanger,
innflytjandi til Bandaríkjanna frá