Úrval - 01.12.1979, Qupperneq 14
12
ÚRVAL
með 390 til að fínna íslenska krónu-
gildið) á ári. Árið 1972 var áfengis-
sýki fyrsta greining helmings allra
karlkyns sjúklinga sem komu á
geðsjúkrahúsin.
í skýrslunni segir, að þessi alþjóð-
lega aukning á drykkjusýki sé að veru-
legu leyti ,,tengd drykkjutísku” bæði
hjá iðnvæddum og vanþróuðum
þjóðum — það er að það þyki fínt að
drekka — en ekki að það sé eitthvað
„eðlislægt í einstaklingunum sjálf-
um”. Ennfremur, að áfengissýki
standi „félagslegri þróun” fyrir
þrifum svo mjög, að sé ekkert að gert,
muni drykkjuvandamálið „kaffæra”
heilbrigðisþjónustu sumra þjóða.
Úr Medical Tribune
HÆTTAN MINNKAR ÞEGA.R
HÆTT ER AÐ TAKA ESTROGEN
i
Konur, sem taka estrogen á
breytingaskeiðinu draga stórlega úr
hættunni á móðurlífskrabba með því
að hætta að nota lyfið, segir í nýlegri
skýrslu í New England Journal of
Medicine. Vísindamenn við lækna-
skóla Bostonháskóla draga þessa
ályktun af rannsókn á 18 þúsunda
konum á aldrinum 50-64 ára, sem
fylgst var með í heilsugæsluþjónustu
Puget Sound í Seattle. Konur, sem
notuðu estrogen urðu með því 1-3%
líklegri með hverju ári að fá krabba-
mein í móðurlíf — legkrabba.
Hættan jókst snöggt eftir fimm ára
töku þessa hormóns. Líkurnar hjá
þeim, sem ekki tóku lyfið, voru
tíundi partur úr prósenti.
Rannsóknin sýndi, að miðaldra
konur, sem notuðu estrogen voru um
það bil 20 sinnum líklegri til að fá
krabbamein 1 móðurlíf heldur en
þær, sem ekki tóku lyflð. En sex
mánuðum eftir að þær voru hættar að
taka það, lækkaði áhættan niður í
næstum að segja sama stig og hjá
þeim, sem aldrei höfðu tekið það.
Yfirmaður rannsóknarinnar,
Hershel Jick sagði: ,,Með það í huga
hvað þær konur, sem taka þetta
hormón til lengdar taka með því
mikla áhættu, er mjög notalegt til
þess að vita, hve fljótt áhættumarkið
kemst aftur niður í hið sama og hjá
þeim, sem ekki nota efnið.”
AP
SYKURKREM VIÐ KYNFÆRA-
SJÚKDÖMI
Einn erfiðasti kynsjúkdómurinn —
sem sumir telja réttara að kalla
kynfærasjúkdóm, því hann berst ekki
endilega við kynmök — er hinn
svokallaði herpes simplex (sjá Úrval,
júní 1975). Þessi sjúkdómur er nú
orðinn 13% af öllum greindum
tilfellum kynsjúkdóma. Þetta er smit-
andi sýking sem veldur sársauka-
fullum sárum í, á og við kynfæri og
óþægindum við þvaglát. Sjúkdómur-
inn er sérstaklega hættulegur í
konum, þar sem hann getur við
fæðingu borist í börn þeirra með
alvarlegum afleiðingum. Hann hefur
einnig verið orðaður við ieg-
krabbamein. Læknar hafa árum
saman leitað að iæknisdómi við