Úrval - 01.12.1979, Page 48

Úrval - 01.12.1979, Page 48
46 ÚRVAL eftir dálitlum skerfí af hamingju þessarar fjölskyldu fyrir milligöngu hvolpsins. Ég kallaði litlu tíkina mína líka Kóku. Hún Kóka mín var súkku- laðibrún og feldurinn ofurlítið bylgjaður. Þegar sólin skein á hana brá fyrir öllum litbrigðum frá silfur- litu yfir í rautt, svo hún var endalaust áhugaverð og falleg á að horfa. Hvort Kóka varð til þess að róa mig og gera mig félagshæfari skal ég ekki segja. En hvernig sem á því stóð liðu ekki nema fáeinar vikur frá því ég eignaðist hana, þangað til ég stofnaði til sambands við konuna sem nú er konan mín. Kóka varð óvenjulegur hundur. Við vorum tvö, sem dekruðum við hana, svo hún varð líkt og vel gefið dekurbarn. Hún var í nánum tengslum við fólkið, skynjaði hver svipbrigði — raddblæ, og handar- hreyfingu. Þegar ég stóð upp til þess að fara í kæliskápinn eða til að fara út, stökk hún á fætur um leið. Ef eitthvað annað en þetta tvennt vakti fyrir mér þegar ég stóð upp, lá hún kyrr. Hvernig vissi hún hvað ég ætlaði að fara að gera? Ef ég yggldi mig eða gerðist höstugur, vék hún strax undan. Þegar hún var ekki viss um hvað mér leið, skein kvíðinn úr augum hennar. í leik átti Kóka engan sinn líka. Ég bjó til hring úr handleggjunum og hún fékk ekki matinn sinn nema stökkva þar í gegn. Hún var fljót að læra það. Jafnfljót var hún að læra hvenær hún átti að sitja, leggjast eða velta sér á bakið. Væri lófa haldið upp fyrir framan hana, fór hún ekki lengra fyrr en ákveðið leyfi til þess var gefíð, það þótt kúfaður matardiskur- inn hennar væri annars vegar. Úti á götu fór hún aldrei út af gangstétt fyrr en ég sagði ,,núna”. Hún greindi hvert minnsta blístur eða hljóðustu skipun frá öðrum hávaða í borginni og hlýddi þegar í stað. Engin vera hefúr nokkurn tíma treyst mér jafnblint og hún. Ast Kóku var hrein og skilyrðislaus. Ég var ekki einn um að dá hana sem félaga. Þegar við fórum á strönd- ina eða í almenningsgarð elti hún bolta, lék sér við krakkana og leyfði smábörnum að hárreyta sig, allt jafn góðlátlega, og varð ævinlega til þess að efna til samræðna og velvildar. Nærvera hennar og tryggð var okk- ur hjónunum mikil stoð. I fímm ár urðum við að búa í íbúð á efstu hæð í verksmiðjuhúsi í New York. Engir aðrir áttu heima í þessu húsi. Á kvöldin var slökkt á lyftunni og við urðum að ganga upp og ofan átta hæðir. Það mátti heita að reglulega væri brotist inn í fyrirtækin í þesso húsi og við vorum í stöðugum ótta um að rekast á misyndismenn í stigunum. Okkur þótti svo ósegjan- lega miklu betra að hafa Kóku með, sem hentist rétt á undan okkur. Þegar ég þurfti að fara frá á kvöldin, var bæði mér og konu minni rórra að vita Kóku heima til verndar. Út af fyrir sig duga engar sögur af
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.