Úrval - 01.12.1979, Side 94

Úrval - 01.12.1979, Side 94
92 ÚRVAL meira af ótta við að Vampíran „stollaði”, en ég setti lofthemlana á. Þotan nötraði þegar hemlarnir lögðust í loftstrauminn en hægði svo ásér niðurl 280hnúta. Þá kom hinn flugmaðurinn til móts við mig, sveigði upp að væng- broddinum hjá mér vinstra megin. Við réttum okkur af saman. Tunglið var hægra megin við mig og skugginn af minni vél lagðist yfir hans, en samt sá ég glitra á tvær skrúfur framan á vængjunum hjá honum. Auðvitað gat hann ekki flogið á sama hraða og ég. Ég var á orrustflugvél með þotu- hreyfli, hann á bulluknúinni skrúfu- vél af eldri gerð. Hann hélt sömu stefnu fáeinar sekúndur, en sveigði síðan lítið eitt tii vinstri. Ég fylgdi. Af afstöðunni til tunglsins vissi ég, að við stefndum aftur upp að Norfolk ströndinni, og í fyrsta sinn sá ég hann nokkuð greini- lega. Mér til undrunar sá ég, að hirðir minn var De Havilland Mosquito, sprengju- og orrustuflugvél síðan úr heimsstyrjöldinni fyrri. I flug- klefanum sá ég móta fyrir flugmann- inum. Hann var með hægri höndina úti við gluggarúðuna, lófann niður. Nú benti hann snöggt fram og niður nokkrum sinnum, sem þýddi: ,,Lækkum okkur.” Ég kinkaði kolli og lyfti vinstri höndinni svo hann gæti séð hana, benti með vísifingrinum fram á mælaborðið hjá mér glennti svo fimm fingur út 1 gluggann og endaði með að draga vísifíngurinn yfír barkann á mér. Þetta er merkjamál, sem þýddi að aðeins væru fímm mínútur þangað til vélin hjá mér dræpi á sér af eldsneytisleysi. Ég sá höfuðið með þéttsniðinni leðurhúfu, gleraugum og súrefnisgrímu, þegar hann kinkaði kolli til merkis um að hann skildi mig. Svo stungum við okkur niður að þokunni. Hann jók hraðann og ég tok lofthemlana af aftur. Hann rétti af aftur í 300 fetum. Þokan var enn fyrir neðan okkur. Líklega lá þokan alveg við jörð en náði ekki nema svo sem hundrað fet upp, en það er líka meira en nóg til að koma í veg fyrir lendingu án stýringar frá jörð. Ég gat vel ímyndað mér upplýsingastreymið frá radar- stofunni inn í heyrnartækin hjá manninum, sem flaug við hliðina á mér. Ég hafði ekki augun af honum, því ég óttaðist að missá af einhverju, starði nær sífellt á höndina á honum og beið eftirmerki. „Fljúgðu áfram og lentu" Eftir svo sem tvær mfnútur hélt hann krepptum hnefa upp að glugg- anum með fíngurna niður. Svo glennti hann út fingurna upp við rúðuna. Þetta þýddi: ,,Settu hjólin niður.” Ég ýtti handfanginu fram og fann rykkinn þegar hjólin þrjú fóru niður. Sem betur fer var þeim stjórnað með vökvaafli, en ekki raf- kerfínu bilaða. Flugmaðurinn í hinni vélinni benti niður aftur, til merkis um að lækka
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.