Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1987, Side 13

Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1987, Side 13
Ekki er unnt að nota fjölda trjáa í gæðaflokk- unum þremur beint sem mælikvarða á vaxtarlag lerkis. Fjöldi trjáa í hverjum flokki er að sjálf- sögðu mjög háður þéttleika skógarins og þar af leiðandi aldri. Skilgreina þurfti nýja breytu sem lýsti gæðum skógarins í heild sinni og er óháðari aldri og þéttleika. Ef tekið er mið af aldursskeiðinu á milli síðustu grisjunar og lokahöggs væri eðlilegur þéttleiki lerkiskógar á Hallormsstað um það bil 500 tré/ha. Þessi þéttleiki er ákvarðaður út frá hæðarvexti elsta lerkisins á Hallormsstað en það náði við 50 ára aldur 14 metra yfirhæð. Úr sænskum og finnskum vaxtarlíkönum má lesa að lerkiskógur með þessa vaxtargetu verður fullvaxta 80 ára (Remröd o.fl. 1978, Vuokila 1960a og 1960b) (Hér er notuð sú skilgreining að skógurinn sé fullvaxta, þegar árlegur meðalviðarvöxtur hefur náð hámarki sínu). Samkvæmt finnskum rann- sóknum eru tæplega 500 tré á hektara talin vera hæfilegur þéttleiki fyrir lerkiskóg með sömu vaxt- argetu (Vuokila 1960a). Þá má gera ráð fyrir að 2 af þeim trjám sem eru í besta gæðaflokki á hverjum mælifleti séu fjar- lægð áður en skógurinn verður fullvaxta, annað- hvort vegna þess að þau hafa skemmst á tímabil- inu eða standa of nálægt öðrum trjám í sama flokki. Þá eiga að standa 7 eða fleiri tré í besta gæðaflokki til þess að hafa 5 tré í sama flokki á síðasta aldursskeiði skógarins. Ef trén í besta flokknum eru færri en 7 þá eru gæði skógarins minni. Með þessa reglu að leiðarljósi voru skilgreindir 9 flokkar fyrir gæði skógarins: 1. 7 eða fleiri tré í gæðaflokki A. 2. 6 tré í flokki A. 3. 5 tré í flokki A. 4. 4 tré í flokki A. 5. 3 tré í flokki A. 6. 2 tré í flokki A. 7. 1 tré í flokki A. 8. Ekkert tré í flokki A, en 7 eða fleiri í flokki B. 9. Ekkert tré í flokki A og færri en 7 í flokki B. Þessi breyta, sem kalla mætti „skógargæði" var síðan notuð sem mælikvarði á vaxtarlag. Flestar aðrar breytur, sem voru mældar eða skráðar á hverjum mælifleti eiga að lýsa þeim þáttum sem geta haft áhrif á vöxt og vaxtarlag. Eftir því hvaða þáttum þær eiga að lýsa er hægt að raða þeim í 3 flokka: 1. Veðurfarsleg áhrif: Staður, hæð yfir sjávar- máli, brekkuhalli og hallaátt. 2. Jarðvegsáhrif: Gróskuflokkur, rakastig jarð- vegs. 3. Líffræðileg eða erfðaáhrif: Tegund, kvæmi. SAMANBURÐUR Á KVÆMUM LERKIS Eins og sjá má í töflu 3 er stærsti hluti mæliflat- anna á Hallormsstað en þar er að finna mesta safn lerkikvæma á landinu. Mælingarnar frá Hall- ormsstað voru þessvegna notaðar við samanburð á kvæmum. Tafla 4 sýnir hvaða kvæmi voru mæld þar og mynd 4 sýnir hvaðan kvæmin eru, sem ættuð eru frá Sovétríkjunum. Tafla 4. Tegundir og kvæmi sem mæid voru á Hallormsstað Nr. Tegund Kvæmi 1 Rússalerki Onega 2 — Arkangelsk 3 — Sénkúrsk 4 — Yarensk 6 — Karpinsk 7 — Sverdlovsk — Raivola 8 Síberíulerki Hakaskoja 9 — Askiz 10 — Altai 11 — Irkútsk — Nésterov Síberíu- eða rússalerki Lerki gróðursett 1922 (kvæmi óþekkt) 12 Dahúríulerki Aldan 13 — Suður-Sakalín — Óþekkt kvæmi 13 Blendingur af Suður- Sakalín-kvæmi og öðru lerki Evrópulerki Týról — Graubunden Lerkibastarður Óþekktur uppruni ARSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ISLANDS 1987 11
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156

x

Ársrit Skógræktarfélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Skógræktarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1995

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.