Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1987, Síða 33

Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1987, Síða 33
ÞORBERGUR HJALTI JÓNSSON Fylgni hita og vaxtar stafafuru á Norðurlandi INNGANGUR Stafafuru var fyrst plantað á íslandi árið 1940 í Atlavíkurstekk á Hallormsstað (6). Árið 1983 var lundurinn 44 ára. Þá var meðalhæð furunnar 11 metrar og meðalþvermál trjánna 19,9 sentimetrar við brjósthæð (19). Árið 1957 hófust skógplant- anir á stafafuru og er stafafuran nú eitt efnileg- asta skógartré landsins (6, 13). Sumarhitinn hefur lengi verið álitinn ráða úr- slitum um vöxt og þrif trjáa á íslandi (1, 2, 4, 5, 7, 8, 9, 10, 16). Haukur Ragnarsson skipti landinu í skógræktarsvæði eftir hita (3, 4, 5), en tiltók ekki hve mikið skógurinn yxi á hverju svæði. Á undanförnum árum hafa birst nokkrar viðar- vaxtartölur, einkum fyrir lerki, stafafuru og rauðgreni (2, 10, 13, 16, 19, 20, 21, 22). Vöxtur lerkis og stafafuru hefur verið kannaður á landinu öllu (1, 2, 10, 16, 17, 18). í þessum könnunum er vöxtur trjánna mældur og landinu skipt eftir honum án tillits til veðurfars. f Suður-Þingeyjarsýslu fann höfundur að reiknaður júlíhiti, landfræðilegt skjól og endur- nýting fosfórs í trénu skýrðu 76% af mismun milli staða í yfirhæð skógarlundanna (10). Gögnin voru þó ónóg fyrir spálíkan byggt á júlíhita (10). í þeirri athugun sem hér birtist er reynt að finna hlut hitans í vexti stafafuru á Norðurlandi. Til þess að athuga þetta er tölum úr Eyjafirði og Vestur-Húnavatnssýslu bætt við gögnin úr Suður- Þingeyjarsýslu. Síðan er athugað hvort marktækt samband sé milli reiknaðs júlíhita og yfirhæðar 23 ára stafafuru af kvæminu Skagway á Norður- landi. RANNSÓKNARAÐFERÐ í þessari könnun eru notuð mælingagögn frá Eyjafirði, Suður-Þingeyjarsýslu, og Vestur- Húnavatnssýslu, sem safnað var á árunum 1982, 1983 og 1986. Alls voru 27 mælireitir af stafafuru af kvæminu Skagway í þessum gögnum á aldrin- um 17 til 27 ára. Yfirhæð stafafurulundar var notuð til að gefa til kynna landkosti (12). Yfirhæð er hér hæð gildasta trés á mælifletinum. í könnuninni í Suður-Þingeyjarsýslu var 23 ára aldur notaður til viðmiðunar fyrir yfirhæð svo að unnt væri að bera saman reitina (10, 16). Til samræmis er hér notaður sami aldur. í öllum reitunum var annaðhvort skráður hæð- arvöxtur undangenginna þriggja ára eða ein- stakra ára síðustu tvo áratugi. Þessi hæðarvöxtur var notaður til að færa yfirhæð einstakra reita að 23 ára aldri. Fyrir hvern mælistað var júlíhiti áætlaður út frá hæð yfir sjó og fjarlægð á beinni línu frá norðri til suðurs frá næstu veðurstöð. Notuð var líking Markúsar Á. Einarssonar, sem gefur að sumar- hiti aukist um 2,5° C fyrir hverja 100 km, sem innar kemur í landið og lækki um 0,6° C fyrir hverja 100 metra er hærra dregur (11). í töflu 1 eru upplýsingar um stafafurulundina á Norðurlandi. NIÐURSTÖÐUR Á Norðurlandi reyndist marktækt línulegt sam- band milli sumarhita og yfirhæðar 23 ára stafa- ARSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1987 31
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156

x

Ársrit Skógræktarfélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Skógræktarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1995

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.