Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1987, Page 54
í þessum kafla hafa verið ræddar í mjög stórum
dráttum forsendur fyrir skógrækt, sem byggjast á
náttúrufari.
í því sambandi verður að minna lesendur
rækilega á, að útbreiðsla náttúrlegs birkigróðurs
segir ekkert um skilyrði til skógræktar. íslenska
birkið getur dregið fram lífið sem lágvaxið
kræklukjarr við ákaflega erfið vaxtarskilyrði. Á
það við bæði um jarðveg og loftslag. Nægir að
minna á, að það finnst í allt að 600 m hæð y.s. og
á mjög rýrum jarðvegi niðri við sjávarmál, þar
sem veðurharka er mikil og víða á Vestfjörðum
vex skriðult birkikjarr upp undir brúnir í fjöllun-
um, 3-400 m y.s.
Á slíkum svæðum getur það vart orðið nema
iágvaxið kjarr, en hefir reginþýðingu til verndar
jarðvegi og myndar vistkerfi, sem er hliðstætt
hávöxnum birkiskógi. Slíkan skóg er að finna, þar
sem jarðvegur er góður og alllangt frá sjó.
TÆKNILEGIR MÖGULEIKAR
Trjátegundir og kvæmi. Skógrækt byggist á
því, að við eigum trjátegundir og kvæmi af þeim
til þess að ná þeim markmiðum, sem ræktuninni
eru sett:
- sem standast íslenska veðráttu — íslenskar
ög innfluttar — óháð vaxtarhraða,
- sem þurfa að hafa lágmarksvaxtarhraða til
viðarframleiðslu í þeim landshlutum, þar
sem viðrar til þess.
Að því er síðara atriðið varðar er þessi skýring:
Lágmarkskrafa um vöxt ræktaðs skógar til
viðarframleiðslu er 3 mVha/ári að meðaltali í
einni vaxtarlotu (70-120 ár).
Á norðurslóðum telja menn unnt að nýta
náttúrlegan skóg, sem vex aðeins 1 m3/ha/ári
(Noregur, Kanada, Sovétríkin t.d.). En þetta er
skógur, sem nýttur er sem hlunnindi, og engu
kostað til ræktunar. Hann getur verið mun eldri
en ræktaður skógur er látinn verða.
Hugum næst að því, hve margar trjátegundir
koma til greina í skógrækt, eins og þekking okkar
er nú:
Þrjár íslenskar trjátegundir má nota í skógrækt
(ekki þó til viðarframleiðslu): Birki, reyni,
blæösp, auk víðitegunda.
Eitt hundrað erlendar trjátegundir hafa verið
reyndar og yfir 600 kvæmi af þeim. Um 20 þeirra
Nytjaskógur.
a.m.k. má nota í ýmiss konar skógrækt. Einar 10
gætu komið til greina í viðarframleiðslu, en
einkanlega þó 5. Þessar tegundir og kvæmi af
þeim eru sóttar til ýmissa heimshluta á norður-
hveli jarðar. Mynd 3. gefur gróft yfirlit um það.
Ræktunartækni. Aðferðir við
- uppeldi plantna,
- ræktun skógar og
- meðferð hans
verða í aðalatriðum að teljast á valdi íslenskra
skógræktarmanna, en eru í sífelldri þróun. Eldri
skógræktarmenn hafa öðlast dýrmæta reynslu í
starfi og reyna eftir megni að fylgjast með nýj-
ungum erlendis, en ungir menn koma um þessar
mundir heim frá námi í ýmsum skógræktar-
löndum og bera með sér nýja strauma. Við
tökum þátt í og njótum góðs af tæknilegri sam-
vinnu við skógvísindamenn á Norðurlöndum.
Fjárhagslegur stuðningur frá ráðheiranefnd
Norðurlanda gerir okkur þetta kleift. Það er
52
ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1987