Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1987, Page 64

Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1987, Page 64
gefur mér tilefni til að segja það, annað en sjálfur vaxtartími trjánna. Samfélagsgerðin er stöðugt að breytast, vinnutími er 40 stundir á viku núna en hann gæti þess vegna verið kominn niður í 20 stundir eftir 50 ár og e.t.v. fyrr. Tíminn í tilveru einstaklingsins fær þannig allt annan tilgang. Pví held ég í rauninni að allir verðmiðar á vinnu, vélum, plægðum viði eða óplægðum svo eitthvað sé nefnt hafi takmarkaða þýðingu fyrir umfjöllun um skógrækt og eigi ekki að beita til þess að ákveða hvort hefja skuii hér skógrækt eða ekki. Það eru ræktunarskilyrði og trú manna á það efni sem í trjánum vex auk ráðstöfunar lands sem allt málið veltur á. Aðrir þættir mæla eindregið með því að skóg- rækt og skógræktarstarf verði eflt í landinu. Þar á ég við huglæga þætti eins og fegrun iands, bætta aðstöðu til útivistar og e.t.v. skyldu okkar að bæta fyrir fyrri not af landinu. Ég held jafnframt að sumarhúsabyggð, hvort sem hún verður í núverandi formi eða ekki, muni aukast. Ef við líkjumst frændum okkar í nálægum löndum þá hefur ásókn í athvarf í náttúrulegu umhverfi vaxið í réttu hlutfalli við aukna veimegun og aukinn frítíma. Allt mun þetta feia í sér nytjar, þjóðhags- legar nytjar, sem ég geri ekki tilraun til að meta í prósentum eins og fjárhagslega arðsemi. En ég held að hún sé há. Hér stendur hnífurinn e.t.v. í kúnni því skóg- rækt með fjárhagslegan arð að markmiði og skógrækt til þess að bæta landið er tvennt ólíkt. Finnst ásættanlegur meðalvegur þannig að lönd séu valin, skipulögð og ræktuð skógi með þarfir íbúanna í huga og einnig hitt að í fyllingu tímans megi fella skóg með peningalegan hag í huga þá er ég sáttur við hugtakið „efnislegar nytjar" en það hefur valdið mér nokkrum heilabrotum. Ég legg ótvírætt meira upp úr fyrra atriðinu heldur en því síðara. AÐ HVERS KONAR SKÓGRÆKT BER AÐ STEFNA? Fyrir þann sem ekkert veit um skógrækt annað en það sem hún amma mín sagði mér, eins og skáldið sagði, þá las ég til undirbúnings máli mínu erindi eftir Vilhjálm Lúðvíksson sem flutt var á skógræktarþingi fyrir ári síðan. Þar dró hann fram á mynd samhengi hlutanna: markmið skóg- ræktar, trjátegundir, samstarfsaðila og ræktunar- aðferðir. Með svipuðum hætti hefi ég sett inn atriði eins og markmið og kröfur til skógræktar- innar, það fé sem leggja skal í starfið og fjár- mögnun og umfang. Tilgangurinn með skógræktinni hlýtur að ráða mjög miklu um það hvernig hana á að skipuleggja og fjármagna, hvaða kröfu á að gera til starfsem- innar og hvað umfangsmikil hún á að vera, samanber eftirfarandi yfirlitsmynd. LOKAORÐ Þá er komið að því að draga saman og álykta út frá orðum mínum. Umræða um skógrækt sem hluta af almennri landvernd stendur á krossgötum um þessar mundir. Við teljum okkur hafa í höndunum fjöregg þótt smátt sé. Samfélagsaðstæður eru nú aðrar en oft áður og þekkingu og færni teljum við okkur ekki skorta. Landeigendur hafa að vísu fram á síðustu ár talið hag sínum betur borgið með því að nýta lendur sínar til hefðbundins búskapar og einungis valdar skákir hafa verið ætlaðar til sumarbústaða og afþreyingar fyrir þá sem á mölinni búa. Ég held að mál sem krefst slíkrar framsýni og skógrækt gerir þurfi gagnrýna skoðun og umfjöllun í víðasta samhengi. Ég hef efasemdir um að í landinu skuli hefja skógrækt sem byggist á rökum um arðvænlega atvinnustarf- semi í venjubundnum skilningi þess orðs. Fjár- hagsleg verðmæti eru eitt og þjóðhagsleg annað. Ég er þeirrar skoðunar að fjárhagslegur ávinning- ur af skógrækt sé reistur á mjög umdeilanlegum forsendum. Ég deili ekki um lífrænar aðstæður til skógræktar, til þess skortir mig þekkingu. Og um notkun á landinu held ég að verði keppt. Því er nú einu sinni þannig varið að mörg þau lönd sem best eru til skógræktar fallin eru jafnframt ákjós- anlegustu búskaparsvæðin. Því má ekki gleyma í framtíðarsýn sem skógrækt er, að þó svo mat- vælaframleiðsla sé ekki arðvænleg starfsemi nú á tímum þarf það ekki að vera um aldur og ævi. Örlítil sveifla í hita getur t.d. valdið því að land verði enn eftirsóttara en það er nú til kvikfjár- ræktar. Þá er ekki úr vegi að hafa f huga að tilfinning manna er einnig með þeim jarðarbúum sem hvorki hafa til hnífs né skeiðar. Ég virði allar tilraunir til þess að meta fjárhags- 62 ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1987
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Ársrit Skógræktarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Skógræktarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1995

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.