Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1987, Síða 85
Sudbury í Ontario, Kanada:
Hér dó allur skógur um síð-
ustu aldamót vegna meng-
unar frá nikkelbræðslu í
borginni. Svo mikil var
þessi mengun, að enginn
skógur hefir vaxið upp
aftur. Petta er skelfilegasta
dœmi, sem enn er til í Kan-
ada um skógardauða af
völdum loftmengunar.
Mynd: S.BL, 08-10-84.
lofti á ári 7 til 21 g/m\ langt fyrir neðan þau mörk
sem talið er að valdi varanlegum skaða, en þau
eru u. þ. b. 40 g/m’ (3). Að þessum upplýsingum
fengnum hefur prófessor Rehfuess sett fram þá
tilgátu að tjón af völdum brennisteinsdíoxíðs í
Mið-Evrópu gæti stafað af stöðugu álagi af lítilli
mengun um langan tíma (3). Pess ber þó að gæta
að mesti meðalstyrkur á hverjum hálftíma getur
orðið 1 g/m3 í Mið-Evrópu, jafnvel þar sem loftið
er „hreint" (12).
OF MIKIÐ ÚRFELLI KÖFNUNAREFNIS-
SAMBANDA
Af 16 frumefnum sem talin eru nauðsynleg
fyrir skógargróður er köfnunarefni venjulega tal-
ið mikilvægast og ráða vexti skóganna. Tilraunir
benda til þess að sé meira köfnunarefni fyrir
hendi en venjulega, taki trén það til sín og auki þá
um leið þörfina fyrir önnur mikilvæg næringar-
efni. Séu þau næringarefni hins vegar ekki fyrir
hendi raskar það eðlilegum vexti trjánna (3).
Meginið af því köfnunarefni sem maðurinn bætir í
náttúruna kemur úr áburði, hreinsun frárennslis,
frá áburðarverksmiðjum og (í litlum mæli) frá
útblæstri farartækja. f Evrópu koma um 70
hundraðshlutar frá ræktuðu landi (og hreinsun
frárennslis) en 10 til 20 hundraðshlutar frá náttúr-
unni sjálfri (13).
I öllum iðnríkjum er áburðarnotkun geysi-
mikil. í Svíþjóð, svo dæmi sé nefnt, er notkun af
köfnunarefnisáburði um 80 kg á hektara á ári.
Rannsóknir í N.-Ameríku hafa leitt í ljós að tíundi
hluti alls köfnunarefnisáburðar gufar upp í and-
rúmsloftið. Áætlað hefur verið að í Svíþjóð gufi
um 20.000 tonn af köfnunarefni upp á hverju ári
en 80.000 tonn falli til jarðar með úrkomu.
Bendir það til þess að verulegt magn af köfnunar-
efni berist inn yfir landamærin með andrúmslofti
(13). I Mið-Evrópu og miðvesturríkjum Banda-
ríkjanna falla auk þess 10 til 25 kg á hektara á ári
af köfnunarefni sem rakt og/eða þurrt úrfelli (í
V.-Þýskalandi 15 til 30 kg á hektara á ári) (13).
Aftur á móti er köfnunarefnisúrfelli þar sem ekki
er um neina mengun að ræða, innan við 1 kg á
hektara á ári (3).
Heildarköfnunarefnisúrfelli úr andrúmslofti í
barrskógum á hálendum svæðum í norðaustur-
hluta Bandaríkjanna er áætlað 37 til 44 kg á
hektara á ári og er áætlað að a. m. k. helmingur
þess berist með úrkomu (3). Tvær kenningar eru
uppi um það hvernig ofgnótt af köfnunarefnisúr-
felli skaði skóga: annars vegar að blöðin taki upp
of mikinn áburð og þoli veturinn þar af Ieiðandi
verr, og hins vegar að of mikil upptaka næringar-
efna breyti efnaskiptum trjánna (3).
Skýringin á því hvernig skaðinn verður er ein-
föld: ofgnótt köfnunarefnis örvar vöxt trjánna og
lengir vaxtartímabilið svo trén fá ekki nægan tíma
til að búa sig undir veturinn (3). Venjulega verða
tré og runnar að búa sig undir veturinn á haustin
ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1987
83