Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1987, Page 91

Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1987, Page 91
JÓHANN GUÐBJARTSSON OG SVANUR PÁLSSON Skógræktarfélag Hafnarfjarðar og Garðabæjar 40 ára Hinn 25. október síðastliðinn voru 40 ár liðin frá stofnun Skógræktarfélags Hafnarfjarðar, sem nú heitir Skógræktarfélag Hafnarfjarðar og Garðabæjar, en nafni félagsins var breytt á ári trésins 1980. Þegar rifja á upp atriði úr 40 ára sögu félagsins, er af ýmsu að taka, því að margt hefur á dagana drifið. Skipst hafa á skin og skúrir, enda hafa ýmsir erfiðleikar komið upp, þegar áhugasamir brautryðjendur hófust handa við að klæða landið trjágróðri að nýju og reyna þar með að bæta fyrir það tjón, sem ellefu alda búseta hefur valdið. Margt varð að reyna, bæði aðferðir og trjátegundir, enda hefur starfsemin að miklu leyti verið brautryðjendastarf, sem leitt hefur af sér drjúga reynslu og þekkingu á aðferð- um og trjátegundum, sem vænlegar eru til að skila góðum árangri. AÐDRAGANDI AÐ STOFNUN FÉLAGSINS Aðdragandann að stofnun félagsins má rekja til þess, að haustið 1946 var Skógræktarfélag íslands, sem stofnað var á Alþingishátíðinni á Þingvöllum 1930, gert að sambandsfélagi héraðs- skógræktarfélaga, en áður gátu bæði félög og einstaklingar verið aðilar að félaginu. Þá voru um 100 Hafnfirðingar félagar í Skógræktarfélagi ís- lands. Til þess að þeir gætu verið áfram í skóg- ræktarfélagi þurfti að stofna héraðsskógræktarfé- lag í Hafnarfirði. Til gamans má geta þess, að daginn áður, 24. október, var Skógræktarfélag Reykjavíkur stofnað, og gengu þeir Reykvíking- ar, sem verið höfðu í Skógræktarfélagi íslands, í það félag. Rétt er að geta þess, að 1927 eða 1928 hafði Hafnarfjarðarbær að frumkvæði nokkurra áhuga- samra Hafnfirðinga undir forystu Ingvars Gunn- arssonar kennara girt landspildu í Undirhlíðum, og gróðursetti Ingvar þar furur árið 1930. Síðan var farið þangað með skólabörn til gróður- setningar í nokkur ár. Er þar nú kominn upp hinn fegursti lundur, sem kallaður hefur verið Skóla- lundur, og vitnar hann um framsýni og bjartsýni þessara brautryðjenda, enda má líta á þetta sem undanfara skógræktarfélagsins. Stofnfundur skógræktarfélagsins var haldinn í fundarhúsi sjálfstæðisfélaganna í Hafnarfirði að kvöldi föstudagsins 25. október 1946. Til fundar- ins var boðað af stjórn Skógræktarfélags íslands, en Ingvar Gunnarsson átti sæti í stjórn þess. Á fundinum voru samþykkt lög félagsins og kosin stjórn og endurskoðendur. Eftir að stjórnin hafði skipt með sér verkum á fyrsta stjórnarfund- inum, var hún þannig skipuð: Ingvar Gunnarsson formaður, Jón Gestur Vigfússon ritari, Jón Magnússon féhirðir og Þorvaldur Árnason og Gunnlaugur Kristmundsson meðstjórnendur. Formennsku í félaginu frá upphafi hafa gegnt Ingvar Gunnarsson 1946—49, Þorvaldur Árna- son 1949—54, Jón Gestur Vigfússon 1954—58, séra Garðar Þorsteinsson 1958—65 og Ólafur Vilhjálmsson frá 1965. Auk Ólafs eiga nú sæti í stjórn skógræktarfélagsins Svanur Pálsson ritari, Hólmfríður Finnbogadóttir gjaldkeri, Björn Árnason varaformaður og Jóhann Guðbjartsson, Pétur Sigurðsson og Viðar Þórðarson meðstjórn- endur. ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1987 89
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Ársrit Skógræktarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Skógræktarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1995

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.