Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1987, Qupperneq 109
var svo til ársloka. Meðalhiti júní—sept. 8,0° C.
Meðalsnjódýpt í des. var 72 cm.
Austurland. (Á við Hallormsstað). Jan.—apríl
voru allir hlýrri en í meðallagi og úrkoma í mars
og apríl langt yfir meðallagi. Maí var aftur kaldur,
frost við jörð nær óslitið 3.—19. maí en þá fór að
hlýna. Júní var 2,5° C yfir meðallagi og sólfar
geysimikið. 9 daga í júní fór hiti yfir 18° C og hæst
hinn 28., í 25° C. Júlí—sept. voru aftur allir undir
meðallagi með hita og úrkomu, nema meira
rigndi í júlí. Okt.—des. voru kaldari en í meðal-
lagi. f des. rigndi geysilega eða 205 mm yfir
meðallag. Alls voru 18 dagar með yfir 18° C
hámarkshita.
Næturfrost komu á sumrinu 5. júní, 31. júlí og
1. og 4. ágúst, mest 2,1° C í mælaskýli 1. ágúst.
Sumarhiti varð 9,3° C, sem er í góðu meðallagi
eftir 1970.
Suðurland. Skógarvörður skrifar: „Veturinn
allhagstæður, snjóléttur. Vorkoma á eðlilegum
tíma. Mjög hagstæð sprettutíð fyrri hluta sumars.
Skiptust á rigningar og sólskinsdagar. Seinni hluti
sumars þurrari en vant er. Allhlýtt sumar. Dagar
yfir 20 gráðum fáir að vanda. f fyrstu viku
september gerði sunnanveður með miklu salt-
roki. Mátti víða sjá merki þess á laufi trjáa. Fyrsti
snjór í seinni hluta október, en ekki til trafala.
Haustið gott, en þó langir frostkaflar í okt.—des.
Árið í heild allgott.“
Haukadalur. Vetur frá áramótum mildur fram í
mars, er kólnaði og snjóaði talsvert. Mjög harður
frostakafli í marslok. Vorið þurrt og kalt. Hinn
10. júní varð jörð alhvít, en þann snjó tók upp
samdægurs. Hlýnaði frá miðjum júní. Mjög hlýir
dagar 28. júní til 3. júlí, hiti komst alla þá daga
yfir 18° C. Júlí var hlýr og ágúst nærri meðallagi.
Fyrri hluti sept. sólríkur og mildur, en síðari
hlutinn votviðrasamur og svalur. Vetur lagðist
snemma að með snjó hinn 1. okt. og 11 gráða
frosti 3. okt. Þá hlýnaði, en kólnaði eftir 17. okt.
og var allmikill snjór til áramóta og fremur kalt.
Suðvesturland. Heldur góð tíð framyfir miðjan
mars, einkanlega í febrúar, mikil hlýindi, en þá
kólnaði og hélst til mánaðamóta. Apríl góður.
Maí mjög hlýr (9,2° C í Rvík) og úrkoma hæfileg.
Júní hlýr, en sólskinsstundir aldrei færri síðan
1923, aðeins 80. Júlí góðviðrasamur og sæmilega
hlýr, en ágúst ágætlega sólríkur og lygn.
Haustmánuðir voru votviðrasamir og nokkrar
frostnætur í október. Nóvember kaldur, en mild
tíð í des.
LAUFGUN OG LAUFFALL
í áratug hefir verið notað á Hallormsstað þýskt
kerfi til þess að ákvarða nákvæmlega laufgun.
Eru viss tré merkt í þessu skyni. Ætlunin var að
nota þetta kerfi á öllum aðalstöðvum Skógrækt-
arinnar framvegis undir forsjá Rannsókna-
stöðvarinnar. Ekki komst þetta í kring nema á
Suðurlandi og í Skagafirði og skýri ég sérstaklega
frá því hér á eftir.
Mat á laufgunartíma og iauffalli birkis hefir til
þessa verið fremur ónákvæmt, þar eð fyrst og
fremst er litið á skógarsvæði í heild, en ekki viss
tré. Hér er þetta sýnt í töflu 1, eins og á
undanförnum árum:
Tafla 1. Laufgun og lauffall birkis á nokkrum
stöðurn
Staður Laufgun Lauffall
Hvammur (Bæjarstaðab.) 23/05 20/09
Hvammur (Skorradalsb.) 04/06 20/09
Hreðavatn 20/06
Hólar í Hjaltadal (Bæjarst.?) 16/06
Vaglir í Fnjóskadal 21/06 18/09
Hallormsstaður (Hallo.st.b.) 12/06 03/10
Hallormsstaður (Bæjarst.b.) 10/06
Tumastaðir (Bæjarstaðab.) 24/05 28/09
Selfoss (Bæjarstaðab.) 05/06 20/09
Þjórsárdalur (Þjórsárdalsb.) 23/06
Haukadalur (Bæjarstaðab.) 18/06 11/10
Haukadalur (Haukadalsb.) 02/06 30/09
Reykjavík (Bæjarstaðab.) 09-12/06 18/09
Þingvellir 05/07 15/09
Tafla 2. Laufgun og lauffall lerkis og alaskaaspar
á nokkrum stöðum
Staður Laufgun Lauffall
Skorradalur:
Lerki (kvæmi ótiltekið) 17-21/05
ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1987
107