Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1987, Page 114
Haukadalur: Sagað var frá plöntum með kjarr-
sögum á tæplega 8 ha. Með öllum kostnaði
reiknuðum er kostnaðurinn á ha 25 þús. kr.
Sundurliðað er þetta á ha: (1) Laun 2.000 kr., (2)
vélar 700 kr. á dagsverk. Afköst virðast vera 0,2
dagsverk/ha. Laun og vélar gera þannig 13.500
kr./ha. Flutningar, fæði og húsnæði er reiknað
11.500 kr./ha. Með Micron-úðadælum og round-
up graseyðingarlyfi er kostnaður við þetta sama
verk 5.600-6.600 kr./ha.
Tilraunir voru gerðar með úðun roundup og er
niðurstaðan af þeim m.a. ofanskráðar tölur.
Flugvél Landgræðslunnar dreifði 8 tonnum af
Græði 4 A yfir Miðhlíð og Stekkjarhlíð. Áætlað
er, að þetta hafi dreifst á 15 ha lands.
Handdreift var 6 tonnum á 40 ha, þ.e. 150 kg/
ha að meðaltali, sem getur verið um 40 g á
plöntu.
í umhirðu og grisjun í Haukadal fóru 1.328
vinnustundir.
Áætlað er, að handdreifing áburðar hafi kostað
um 1 kr. á plöntu, sem skiptist nokkuð jafnt á
efni og vinnu.
Suðvesturland. Hreinsað var úr Furulundinum
á Pingvöllum og dauð og hálfdauð skógarfura í
Almannagjárhelli meðfram veginum suður
vellina.
GRÓÐURSETNING
Borgarfjarðarsýsla: Hér var sett með minnsta
móti á árinu. Helst nýmæli, að dálitlu af birki var
plantað á Stóru-Drageyri og Húsafelli.
Vesturland: Hér var öll gróðursetningin á
Hreðavatni, hvort tveggja fjölpottaplöntur.
Norðurland vestra: Plantað var aðallega stafa-
furu, Bennett Lake, í plógstrengi á Reykjarhóli.
Svo virtist um haustið, að vanhöld yrðu mjög
mikil og er mest kennt um miklum þurrkum síðari
hluta sumars. Með hverri furuplöntu var borið
þrífosfat og mikið skeljakalk.
Norðurland eystra: Langmest var gróðursett á
Skuggabjörgum og Vöglum á Pelamörk. Til ný-
lundu má telja, að þar var plantað 1.250 alaska-
öspum. Er þetta nokkur fyrirboði þess, að öspin
verði gróðursett í vaxandi mæli í skóglendin.
Launakostnaður var kr. 4,20 á plöntu. Verður þá
að hafa í huga, að skóglendin þarna liggja dreift
og tiltölulega mikill tími fer í flutning fólks að og
frá plöntunarstað.
Austurland: Hér var gróðursett minna en um
áraraðir. Var það vegna þess tjóns, sem
krossnefurinn frægi olli árið áður. Það voru ekki
til plöntur. Pað sem niður fór, voru mest ýmis
smásýnishorn. Helst nýlunda var að því, að á
Hafursá var plantað 2.185 mýralerki (Larix laric-
ina) frá Fairbanks í Alaska og 3.610 hengi-
björkum. Var hún ættuð frá Finnlandi. Hvoru
tveggja var plantað í plógstrengi. Verður spenn-
andi að fylgjast með þessum tegundum báðum,
sem sáralítið hefir verið af til þessa. Ástæða er til
að ætla, að hengibjörk af réttum kvæmum eigi
meiri framtíð fyrir sér á íslandi en menn hafa
ætlað. Launakostnaður á plöntu varð kr. 2,30.
Suðurland: Hér var svipað magn sett og á
undanförnum árum og allt á tvo staði, Pjórsárdal
Tafla 5. Jólatré 1986
Umdæmi Greni Fjallaþinur Stafafura Hnauspl. Alls tré Greinar kg.
Borgarfjörður....... 3.299 — 969 83 4.351 777
Norðurland vestra ... — — 29 — 29 —
Norðurland eystra ... 1.000 183 241 — 1.426
Austurland .............. 1.111 166 90 — 1.267 385
Tumastaðir......... 9 — — — 9 —
Suðurland ............... 1.873 25 126 — 2.024
Haukadalur....... 2.230 — 740 — 2.970
Suðvesturland....... 31 — 49 — 80 —
9.553 376 2.244 83 12.156 1.162
112
ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1987