Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1989, Side 6

Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1989, Side 6
Hann sýndi fram á að sakir einangrunar var gróðurríkið hér einhæfara og fáskrúðugra en loftslag og lega landsins gefa tilefni til. Pví þyrfti að rjúfa þessa einangrun og flytja inn nýjan gróður. Að því vann hann ötullega eins og síðar verður vikið að. Hann sá að skógrækt og hvers konar landgræðsla mundi aldrei verða öflugur þáttur í samfélaginu nema með þvf að rækta þjóðarsálina. Til þess þurfti að fræða, kenna og prédika til að vekja áhuga og síðan að efla sam- tök þeirra sem tekið höfðu við neistanum. Hann sá að glóðin mundi samt fljótlega kulna ef verkin sýndu ekki merkin og að því vann hann ódeigur og einstaklega ötull á hverju sem gekk. Að öllum ólöstuðum, áhugamönnum og fag- mönnum á Skógræktarfélag íslands sennilega engum meira að þakka en Hákoni Bjarnasyni. Hann var fyrsti framkvæmdastjóri þess og gegndi því starfi á fjórða áratug. Hann vann að stofnun margra skógræktarfélaga, þar á meðal þess stærsta og öflugasta, Skógræktarfélags Reykja- víkur. Hann var ritstjóri Arsrits Skógræktarfé- lags íslands í 23 ár og hefur enginn einn maður lagt því til jafnmikið efni. Því er sérstök ástæða til þess að minnast hans í ritinu með virðingu og þökk. I Arsritið skrifaði hann þorrann af sínum veigamestu greinum um skógræktarmál, gróður- sögu og gróðurverndarmál. Það geymir því ein- mitt margt það, sem varanlegast mun reynast af hugverkum hans. Skógar framtíðarinnar á ís- landi munu samt, vonandi, halda merki hans lengst á lofti. Eftir að Hákon tók við starfi skógræktarstjóra var hann í reynd foringi sem fór fyrir tveimur fylkingum sem sóttu að sama marki, liði áhuga- mannanna og hópi fagmanna. Hann gætti þess jafnan að liðin væru samstillt. Fyrir hans tilstilli ekki hvað síst var samvinnan jafnan svo náin og góð að lítill greinarmunur var oft gerður á því hvað var ríkisstofnunin og hvað félög áhuga- manna. Fyrir allt þetta voru Hákon og Guðrún bæði kjörin heiðursfélagar Skógræktarfélags íslands á aðalfundi þess 1977. Það var ekki að ástæðulausu að þau hjónin voru heiðruð bæði við opinber starfslok Hákonar, svo vel stóðu þau saman, það þekktu allir skógræktarfélagar. Hér skulu nú rakin í stuttu máli helstu æviatriði Hákonar Bjarnasonar. Hann var fæddur í Reykjavík 13. júlí 1907. Foreldrar hans voru merkishjónin Ágúst H. Bjarnason prófessor í heimspeki við Háskóla Islands og Sigríður Jónsdóttir kennari við Kvennaskólann og Verslunarskólann í Reykja- vík. Hann lauk stúdentsprófi frá Mennta- skólanum í Reykjavík 1926 og hóf síðan nám í skógræktarfræðum við Landbúnaðarháskólann í Kaupmannahöfn. Þaðan brautskráðist hann fyrstur íslendinga í þeim fræðum 1932. Næsta vetur vann hann sem aðstoðarmaður við rann- sóknir í lífeðlisfræði plantna við sama háskóla. Hann kom heim til starfa vorið 1933 og gerðist þá framkvæmdastjóri Skógræktarfélags íslands og fyrsti starfsmaður þess en það var stofnað 1930. Hann kom þá strax á fót gróðrarstöð á vegum félagsins í Fossvogi og hafði umsjón með henni þar til nýstofnað Skógræktarfélag Reykjavíkur tók við henni 1946. Hákon var skipaður skógræktarstjóri 1. mars 1935 og gegndi því starfi í 42 áreðatil 1. júlí 1977. Á þessari löngu starfsævi mótaði hann skógrækt- arstarfið á íslandi svo sem reynt er að gefa hug- mynd um hér að framan. Veturinn 1936-1937 dvaldist Hákon við framhaldsnám í tilrauna- fræðum í jarðrækt við hina þekktu tilraunastöð í Rothamsted í Englandi og að hluta í Svíþjóð. Eftir heimkomuna var hann ráðinn forstöðu- maður Mæðiveikivarna, sem næstu árin höfðu mikið umleikis, m.a. við að koma upp varnar- girðingum á milli héraða og landshluta. Því starfi gegndi hann með skógræktarstjórastarfinu til árs- ins 1941. Hákon vann ötullega að stofnun Landgræðslu- sjóðs í tengslum við lýðveldisstofnunina 1944. Landssöfnun fór fram samfara kosningum um stofnun lýðveldisins undir vígorðinu „greiðið skuld ykkar við landið“. Vel safnaðist og náði málflutningurinn eyrum þjóðarinnar. Hákon var formaður sjóðstjórnarinnar frá upphafi til ársins 1977. Hann bar Landgræðslusjóð ætíð mjög fyrir brjósti og sýndi það m.a. í verki er hann gaf 4 ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1989
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156

x

Ársrit Skógræktarfélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Skógræktarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1995

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.