Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1989, Side 12

Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1989, Side 12
man eftir því, að slegið var hey inni á heiði á stórum jarðvegstorfum, sem nýlega eru horfnar út í veður og vind. Hefir það líka heyrt sér eldra fólk tala um jarðveg og gróður á stöðum, sem uppblásnir voru í minni þess. En merkasta vitnis- burðinn um gróður landsins er að finna í Jarða- bók Arna og Páls. Arið 1709 eru þessi orð skráð við lýsingu Haukadals: „Sandur tekur til að ganga norðan á land jarðarinnar, og sýnist að til stærri skaða verða muni með tíðinni“. Ennfrem- ur segir Jarðabókin: „Munnmæli eru að byggð hafi verið langt fyrir norðan Haukadal og í kringum Bláfell, og hafi þá Haukadalur átt að standa svo sem í miðri sveit, en ekki vita menn nein bæjarnöfnin“. Um Sandvatnshlíðar vitum við, að þar átti Torfastaðakirkja skóg, en sá skógur var talinn aleyddur og í sand kominn árið 1709. Jarðabókin gefur furðu góða lýsingu af landinu í Haukadal, ef nánar er að gætt. Sandfokið er að hefjast nyrst í landinu, og er það í beinu fram- haldi af eyðingu skógar og uppblásturs í Sand- vatnshlíðum. Að öðru leyti mun landiö hafa verið vel gróið, og kemur slíkt heim við það, er menn vita um landið á öldinni, sem leið. Af lýs- ingu Jarðabókarinnar er og greinilegt, að þeim mönnum, sent tóku hana saman, hefir verið ljóst, hvernig landskemmdir höguðu sér og eins hvers vænta mátti í framtíðinni. Uggur þeirra hefir fram komið, og sýnir það okkur, að til hafa verið íslendingar á 18. öld, er sáu og skildu í hvert óefni stefndi, þótt þeir hafi ekki verið þess um komnir að reisa rönd við rás atburðanna. Af þessari fáorðu lýsingu er það svo Ijóst, að ekki verður um deilt, að um 5.000 til 6.000 hekt- arar lands hafa blásið upp á Haukadalsheiðinni undanfarin 240 ár. Eru slíkt geysilegar skemmdir á einni jörð á ekki lengri tíma. Skammt frá sæluhúsi Ferðafélagsins við Eini- fell eru enn nokkrar jarðvegstorfur, og það hlýtur að vekja undrun flestra að sjá þar allmikið af lág- vöxnu birki, jarðlæga einirunna og ýmsar blóm- plöntur, svo sem sóleyjar og blágresi, er einkum fylgja kjarrlendi. Og þegar við vitum líka af lýs- ingu Jarðabókarinnar, að skógur hefir fyrrum verið í Sandvatnshlíðum í norðaustur af Hauka- dalslandi og í beinu framhaldi þess, verður varla hjá því komist að draga þá ályktun, að á land- námsöld hafi verið samfelldur skógur þaðan og niður í skógabrekkurnar ofan við Haukadal. Landið ofan Haukadals er áþekkt mörgum öðrum heiðalöndum í uppsveitum Suðurlands, og gróðurskilyrði þar eru hin sömu eða jafnvel verri en austur í Hreppum, í Landsveit, á Rang- árvöllum, íHvolhreppi, Fljótshlíð ogundirEyja- fjöllum, svo að nokkuð sé nefnt. Af því má enn draga þá ályktun, að birkiskógar hafi verið furðu víðlendir um allt Suðurland á landnámsöld og jafnvel síðar. í því sambandi má benda á eyjar og hólma í Þjórsá. Allt frá Klofaey, sem liggur skammt neðan við Tungnárósa, og niður fyrir Stóra-Núp, eru þær eyjar og þeir hólmar kjarri og skógi vasnir, sem ekki er kostur á að hafa sauðfé í. En hinar eyjarnar, sem auðvelt var að nytja til beit- ar, eru skóglausar með öllu, og sumar, eins og Árnesið og Hagaey, mikið skemmdar af upp- blæstri. Auk þess vita menn, af skrifuðum gögnum og munnlegum heimildum, að uppblásturinn í Landsveit á rót sína að rekja til skógaskemmda og skógaeyðinga. Flatarmál Landsveitar ofan Skarðsfjalls er um 120 ferkílómetrar, en af því eru 3/4 nú uppblásnir síðan uppblástur hófst þar, sennilega á 17. öldinni. Aðalskemmdirnar urðu á öldinni sem leið, einkum í tveim harðviðriskötl- um, er landið lá opið og bert fyrir ofviðrum sakir þess, að menn og skepnur höfðu eytt hinum nátt- úrlega verndargróðri. VI Rúmið leyfir ekki að brugðið sé upp fleiri dæmum af Suðurlandi, en nógu er af að taka, og talar það allt sama máli. Til þess að sýna, að miklar skógaskemmdir hafi átt sér víðar stað, má benda á það, sem menn vita um Fnjóskadalinn. Samkvæmt Jarðabókinni er talinn meiri og minni skógur á 39 bæjum af 45, sem þá voru í byggð. Nærri 200 árum síðar tók Sigurður Sigurðsson, síðar búnaðarmálastjóri, saman lýsingu af skógum í Fnjóskadal (Andvari, 25. árg.). Þá var aðeins skógur á 6 jörðum af þeim 41, sem þá voru byggðar. Árið 1712 eru 6 jarðir skóglausar í dalnum, en árið 1900 er aðeins eftir skógur á 6 10 ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1989
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156

x

Ársrit Skógræktarfélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Skógræktarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1995

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.