Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1989, Side 20

Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1989, Side 20
miðar, og meðan svo er, skyldi enginn treysta um of á hana. Mikið af því landi, sem nú fer forgörðum, gæti síðar orðið að nytjalandi, ef því væri forðað frá eyðingu. Við höfum enn óljósa eða enga hugmynd um, hvernig við eigum og megum nytja beitarlönd og úthaga, þannig að landið skemmist ekki. Það er siðferðilega rangt af okkur fslending- um, að heimta meiri arð af gróðri landsins en hann getur veitt okkur að skaðlausu, og það er glæpur gegn þeim kynslóðum, sem landið erfa, ef við spillum og eyðum landi meira en orðið er, því að engin nauðsyn rekur okkur lengur til þess. Fyrir því er það ábyrgðarhluti að leyfa mönn- um stóraukna fjárrækt að lítt breyttum ástæðum hvað ræktun við kemur. Fyrir því er það skemmdarstarf, að leyfa mönnum ótakmarkaða hrossaeign. Fyrir því ætti að láta lögin um ítölu koma til framkvæmda um allt land. XV Af því, sem sagt hefir verið hér að framan, munu margir telja skoðanir mínar á þessum málum mótast af svartsýni. Svo er þó ekki. Flingað til hefir aðeins verið rætt um það, sem orðið er og enn á sér stað í beinu framhaldi af búskaparlagi fyrri tíma. Lega íslands skapar öllum gróðri að vísu þröng kjör. -Landið liggur á strauma- og vindamótum, jarðvegurinn er fokjörð, sem mjög er hætt við eyðingu, ef hann nýtur ekki góðrar gróðurvernd- ar, og ennfremur er gróðurinn einhæfur og við- námslítill. Fcir Steindór Steindórsson grasafræðingur og Sigurður Þórarinsson jarðfræðingur, hafa báðir dregið svipaðar ályktanir af ólíkum forsendum í þá átt, að mikill meiri hluti hinna íslensku plöntu- tegunda hafi hjarað af hér á landi á síðustu ísöld. Allmargar plöntur hafa borist hingað af manna- völdum, en hinar eru tiltölulega fáar, sem borist hafa til landsins af sjálfsdáðum. Pegar við vitum auk þessa, að um norðanverða Evrópu vaxa um tvisvar sinnum fleiri tegundir plantna en hér eru, og að um norðanverða Amer- íku eru um þrisvar sinnum fleiri tegundir við svipuð veðurskilyrði, opnast fyrir okkur margt, sem áður var hulið. Meðal annars er þetta: 1. Fæð plöntutegunda hér á landi er afleiðing af einangrun landsins. Ástæðan til að barrskógar uxu hér ekki á landnámsöld er eingöngu sú, að fræ þeirra gátu ekki borist hingað. 2. Ffér á landi eru vaxtarskilyrði fyrir fjölda tegunda, sem ekki hafa vaxið hér áður. 3. Sakir langrar einangrunar má ætla, að hinn íslenski gróður sé veikbyggður í samanburði við annan svipaðan gróður, sem vaxið hefir upp við sams konar gróðrarskilyrði annars staðar, en sífellt orðið að heyja enn harðari samkeppni fyrir tilveru sinni. 4. Ennfremur hefir það aukið á viðkvæmni og þróttleysi hins íslenska gróðurs, að hér voru engar grasætur áður en land var numið. 5. Af þessum ástæðum mágeraráðfyrirþví, að margur erlendur gróður, sem völ er á að flytja til landsins af norðlægum slóðum, muni reynast sterkari og harðgerari en svipaður gróður íslenskur. Innflutningur plantna gæti því orðið til stórkostlegra nytja og aukið mjög fjölbreytni í ræktun landsmanna. Ekki má samt loka aug- unum fyrir því, að sumar innfluttar tegundir geta orðið til tjóns og trafala. Ef menn hugsa um þessi atriði og önnur, sem draga má af þessum ályktunum. verður Ijóst, að hér á íslandi eigum við margra kosta völ í ræktun landsins. Hér þarf að vinna að með skynsemi og þekkingu. En eitt er víst: Gróðurránið verður að hverfa sem allra fyrst, og taka verður upp nytsamlega og skynsamlega ræktun lands. Hugsunarháttur hirð- ingjanna og beitarhúsamennskan verður að hverfa úr sögunni. Að öðrum kosti mun landið halda áfram að blása upp og eyðast. Aths. Þessa grein ritaöi Hákon í dagblaðið Tímann upp- haflega. Hún birtist sérprentuð árið 1953, en birtist hér í fyrsta skipti í Ársritinu. 18 ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1989
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156

x

Ársrit Skógræktarfélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Skógræktarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1995

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.