Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1989, Page 85

Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1989, Page 85
ist sjálfur við að pæla upp melinn og koma plöntunum niður. Við óttuðumst að vísu, að þær kynnu að frjósa upp næsta veturinn. En svo varð ckki. Plönturnar högguðust ekki og fóru svo brátt að vaxa alveg eins eðlilega og hinar, sem stóðu í birkiskógarjarðveginum rétt hjá. Þetta varð til þess, að næsta ár, 1963, var lerki gróðursett í dálítið svæði rétt hjá núverandi bensínstöð á Hallormsstað, þar sem lengi hafði verið náma fyrir steypusand. Sú gróðursetning tókst h'ka ágætlega og lerkið dafnaði furðuvel á báðum stöðunum. Petta fikt okkar varð til þess, að við uppgötvuðum, að lerki gat verið ágætis land- græðsluplanta, ef hægt væri að hindra, að það frysti upp. Lerkið á melnum í Vörðuhrauninu fékk aldrei neinn áburð, og jók það enn á gildi þess sem landgræðsluplöntu. Hér eru birtar tvær myndir af þessu lerki: Hina fyrri tók ég 9. okt. 1969, þegar plönturnar höfðu vaxið í 8 sumur og komnar á gott skrið, öllu betra en hinar, sem sjást á bakvið í birkiskóginum. Seinni myndina tók ég á nákvæmlega sama stað 18 árum seinna, eða 8. okt. 1987. Þótt fullorðnir menn séu þar til viðmiðunar, en lítil telpa á hinni fyrri, dylst ekki, að vöxtur lerkisins þarna á melnum hefir verið furðugóður, mikiu betri en okkur Jón Jósep gat dreymt um vorið 1962. Þrif og vaxtarlag Sverdlovsk-kvæmisins hafa líka verið miklu betri en mig óraði fyrir, því að satt að segja bjóst ég við, að Sverdlovsk myndi reynast slæmt kvæmi í öllu tilliti. SITKAGRENI í „GULLHEKTÖRUM" Vorið 1962 voru gróðursett í svonefndum Sel- höfðum á Skriðufelli í Þjórsárdal 36 þús. sitka- greni. Megnið var sett í kinnina, sem veit að Sandá. Garðar Jónsson gaf þessu svæði snemma nafnið „Gullhektarar“. Þarna var lágvaxið og kræklótt birkikjarr. Höggnar voru rásir í kjarrið fyrir gróðursetningunni. Rásirnar voru upp og niður brekkuna og blöstu við vegfarendum, sem fóru um Þjórsárdalsveginn hinum megin Sandár. Fyrir þetta athæfi hlaut Skógrækt ríkisins miklar skammir. Ég minnist þess, að einn málsmetandi maður í þjóðfélaginu kallaði þetta villimennsku. En þetta var nú einu sinni aðferð skógræktar- manna, þar sem erlendar trjátegundir voru gróðursettar í birkilendi: Að ryðja burt birkinu fyrir skóg sem átti að verða stórvaxnari og kraft- meiri en það. Og í birkiskóginum voru oftast bestu jarðvegsskilyrðin fyrir flestar aðrar trjáteg- undir, sem verið var að reyna hér, líka nokkurt skjól fyrstu og viðkvæmustu ár smáplantnanna. I lágvöxnu kjarri eins og í Selhöfðum var einfald- asta grisjunaraðferðin að höggva í það rásir. Ég birti hér tvær myndir, sem ég tók í Sel- ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1989 83
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Ársrit Skógræktarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Skógræktarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1995

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.