Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1989, Blaðsíða 102

Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1989, Blaðsíða 102
fremst ætlað að framleiða fræ af stafafuru og sitka- greni, en einnig fræ annarra tegunda, ef um er samið. Taraldseyja er eign Etnesveitar, sem með samn- ingi frá 5. mars 1974, hefir leigt Norska skógrækt- arfélaginu landið til 60 ára. Gefendurnir greiða öll útgjöld varðandi frægarðinn, ásamt rekstrar- kostnaði til ársins 1990, að undanskilinni söfnun köngla, þreskingu og hreinsun fræs. Skógræktar- félag íslands, annar félagsskapur eða stofnun á Islandi tekur við rekstri garðsins frá 1. janúar árið 2000. Eftir tegundum er frægarðinum skipt í þrennt. Tveir stórir reitir eru á Taraldseyju, annar vaxinn upp af stafafuru og hinn af sitkagreni. Sá þriðji er fjallaþinsreitur, sem plantað var til á Gunnars- hólma, sem er smáeyja í mynni Ölenfjarðar, suð- vestan Taraldseyjar. Hér verður ekki rakinn aðdragandi þessarar mikilsverðu gjafar en tilgangur hennar var fyrst og fremst að tryggja íslenskri skógrækt nægilegt magn af hentugu fræi fyrrgreindra tegunda, sem oft hefur reynst erfitt. Einkum hefur fjallaþinsfræ frá Alaska reynst torfengið, bæði sakir þess að Iangt er á milli góðra fræára og erfitt hefur verið og kostnaðarsamt að fá fræ frá þeim stöðum, sem fýsilegastir eru til fræöflunar. Eftir að samgöngur innan Alaska hafa batnað hefir Skógrækt ríkisins treyst sambönd sín við fræsafnara og kaupmenn þar vestra. Engu að síður reynist öflun fræs frá Alaska mjög svo ótrygg. Fræuppskeran hefur ekki verið sem skyldi og aðrar þjóðir hafa bæst við í samkeppnina um fræið. Af þessum sökum og öðrum er ljóst að frægarðar geta verið mjög svo þýðingarmiklir fyrir skógrækt hér á landi. FRÆGARÐUR Með frægarði er einfaldlega átt við trjáreit, sem gróðursettur hefur verið í þeim tilgangi að rækta fræ af þekktu erfðaupplagi og gæðum. Fræ- garður hefur sömu merkingu og enska orðið „seed orchard“ og skandinavíska orðið „fröplan- tage“. I þessu felst að safnað er á einn stað trjám af völdum einstaklingum sömu tegundar, sem borin hafa verið saman innbyrðis með tilliti til gæða, og sannað hafa kosti sína til ræktunar. Eftir að móðurtrjám hefur verið plantað út í fræ- garðinn fer aftur fram mat á þeim og þeir ein- staklingar fjarlægðir úr garðinum, sem ekki standast tilskildar kröfur. Fessar gæðakröfur geta verið af ýmsum toga og móðurtré valin t.d. með tilliti til vaxtarhraða, beinleika stofns, betra greina- forms, mótstöðu gegn skordýrum eða sjúk- dómum og þoli gegn frosti svo að það helsta sé nefnt. Sem oftast er innbyrðis frjóvgun milli einstakl- inga í frægarðinum látin ráða, en tæknilega er mögulegt að stýra henni. Slíkt er mjög kostnað- arsamt og sennilega myndi sú gæðaaukning, sem fengist ekki svara kostnaði. Stýrð frjóvgun er því helst notuð í tilraunaskyni lil að fá svar við ýmsum erfðafræðilegum spurningum. I frægörðum er lögð rík áhersla á alla umhirðu, s.s. áburðargjöf, illgresiseyðingu og varnir gegn skordýrum og sjúkdómum til að tryggja ríkulega og góða fræmyndun. Því eru frægarðar staðsettir þar sem vaxtarskilyrði eru góð, en það eykur á tíðni góðrar blómgunar og fræmyndunar. Við staðsetningu frægarða er þess gætt að þeir séu einangraðir frá skóglendum sömu tegunda. Þetta er gert til að koma í veg fyrir erfðamengun af óæskilegum uppruna. Þar sem móðurtrén í frægörðum eru valin eftir ytri einkennum og vitað er að hinir ýmsu um- hverfisþættir geta haft mikil áhrif á vöxt og útlit trjáa þá er ljóst að afkvæmaprófun er nauðsyn- leg. Þetta er nauðsynlegt til að geta gengið úr skugga um hvaða eiginleikar eru arfgengir og hverjir mótast af umhverfinu. Til eru margskonar frægarðar og í höfuðdrátt- um má skipta þeim í tvo aðalflokka. í öðrum flokknum eru móðurtré, sem fjölgað hefur verið á kynlausan hátt - með ágræðslu eða græðling- um. í slíkum görðum er fyrst og fremst verið að afkvæmaprófa einstaklinga, sem safnað hefur verið úr skóglendum, og er fyrsta stigið í kyn- bótastarfsemi, að undanskildum kvæmarannsókn- um. I hinum flokknum eru gróðursett móðurtré, sem alin hafa verið upp af fræi úrvalstrjáa að undangenginni afkvæmaprófun. 100 ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1989
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156

x

Ársrit Skógræktarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ársrit Skógræktarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1995

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.